þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég freistaði þess áðan að fá svör við einhverjum af þeim spurningum sem brenna á okkur og mörgum sem fylgjast með. Hæstv. utanríkisráðherra kom hér í hliðarsal til að kíkja á okkur; ég hélt að hún ætlaði að koma og svara einhverju en svo er því miður ekki. Mig langaði því að reifa það aðeins hér hvort við treystum þessari ríkisstjórn og hæstv. utanríkisráðherra sem treystir sér ekki til að koma og svara einföldum spurningum okkar. Treystum við henni og hennar fólki til að semja fyrir Íslands hönd? Þessi sami hæstv. ráðherra virðist hafa lagt sig fram um að veikja íslenskan sjávarútveg og hún lagði sig fram um að klára makrílsamninga af því að þeir voru Íslandi erfiðir í síðustu viðræðum við Evrópusambandið. Og hvernig voru þessir makrílsamningar? Íslenskum hagsmunum var fórnað og hlutur Íslands var verulega skertur. Hæstv. utanríkisráðherra tilkynnti að hún hefði undirritað samning við Bretland, Noreg og Færeyjar um skiptingu hlutdeildar milli ríkjanna fjögurra í makríl. Ég vil minna á að þetta er bara eitt atriði sem samið var um og hagsmuna Íslands var ekki betur gætt en svo að við vorum eina landið sem lækkaði verulega. Samkomulagið, það sem um var samið, gildir til ársloka 2028 og ekkert ríki gaf eftir jafn stóran hlut og Ísland. Í samkomulagi þessu er raunverulegur hlutur Íslands 10,5%. Það er rúmlega þriðjungslækkun frá því sem var þegar hann var 16,5%. Þannig hefur það verið undanfarin ár. Ekkert hinna þriggja ríkjanna sem tóku þátt í þessum samningum hefur tekið á sig svo umfangsmikla lækkun á sínum hlut. Það veldur auðvitað sérstökum vonbrigðum að íslensk stjórnvöld hafi fallist á að Ísland væri með lægri hlut en Færeyjar. Ég skil ekki hvernig var komist að þeirri niðurstöðu. Það er mjög fátt sem styður þá niðurstöðu og nægir þar að líta til viðveru makríls í lögsögu ríkjanna í árlegum sumarleiðangri rannsóknarskipa undanfarna tvo áratugi. Samkvæmt samkomulaginu fær Ísland aðgang til að veiða 60% aflamarks innan norskrar lögsögu og 30% innan færeyskrar lögsögu. Það er almennt jákvætt að fá aukinn sveigjanleika til að veiða en skilyrði Norðmanna eru mjög skaðleg íslenskum hagsmunum. Þannig ber íslenskum skipum að bjóða tvo þriðju hluta aflans upp í gegnum norska síldarsölusamlagið. Þar er um einokunarmarkað í eigu norskra útgerða að ræða og lögmæti hans sætir sérstakri rannsókn Eftirlitsstofnunar EFTA. Í raun er verið að tryggja að norskar vinnslur fái verulegt forskot til kaupa á íslenskum afla vegna nálægðar við miðin. Hætt er við að með þessu fyrirkomulagi bresti forsendur fyrir vinnslu hlutaðeigandi afla hér heima og þar með tapist verðmæt störf, tækifæri til aukinnar verðmætasköpunar og stórt skattspor við vinnslu hráefnisins á Íslandi. Mikilvægum þætti í samkeppnishæfni Íslands, samþættingu veiði og vinnslu, er aukinheldur stefnt í hættu. Ísland samþykkir að virða að vettugi vísindalega ráðgjöf. Einnig var um að ræða fordæmalausa útilokun atvinnugreinarinnar frá samningaviðræðum, því miður. Samningafundirnir sem hæstv. utanríkisráðherra fór á fóru fram án atvinnugreinarinnar en alla jafna hafa fulltrúar atvinnugreinarinnar í sendinefndum allra ríkjanna tekið þátt. Þetta er sami hæstv. ráðherra og við ætlum að treysta fyrir samningaviðræðum við Evrópusambandið ef við segjum já í ágúst; sami ráðherra, sem er enn þá að halda því fram að við getum kíkt í einhvern pakka þegar það liggur fyrir að það eru engar varanlegar undanþágur hjá Evrópusambandinu.
Forseti. Hér á pöllunum sjáum við unga menn. Ég gæti giskað á að þeir myndu sjálfir vilja taka ákvörðun um sína framtíð og hvort Ísland eigi að ganga í bandalag sem er að dragast aftur úr á öllum sviðum. Af hverju ættum við að vilja festa okkur inni í slíku bandalagi sem er búið að reglugerðarvæða sig út úr samkeppninni? Ég bið um að verða sett aftur á mælendaskrá.