þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég hef neyðst til að minnast á það að forveri hæstv. forseta í forsetastóli brást ekki við ítrekuðum beiðnum mínum um að hæstv. forseti gæfi a.m.k. svör um hvers væri að vænta varðandi leynigögnin svokölluðu. Ég tel ástæðu til að árétta það hér. En ég var að fara í gegnum nefndarálit 2. minni hluta í utanríkismálanefnd og var að fjalla um kaflann sem snýr að tímasetningu áformaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu og var langt kominn með hann. Þar bar allt að sama brunni. Allt virðist þetta til þess ætlað að tryggja það að hægt sé að hraða málinu í gegn eins og nokkur kostur er, jafnvel að því marki að það sé litið fram hjá reglum um hvernig mál skuli kynnt og þar fram eftir götunum. — Ég átti eftir að nefna það, herra forseti, nei ég kem inn á það í næsta kafla varðandi aðkomu utanríkismálanefndar. — Það hefur verið reynt mikið að hraða þessu máli áfram en um leið reynt að takmarka upplýsingagjöf. Það að halda atkvæðagreiðsluna í lok ágúst er auðvitað liður í því því að það er ekki hægt að finna neina tímasetningu á árinu þar sem vikurnar á undan, segjum átta vikur þar á undan, eru eins dauðar í pólitískri umræðu og vikurnar í júlí og ágúst. Dagsetningin virðist því beinlínis til þess valin að takmarka eins og mögulegt er umræðu um málið. Þetta fer saman, dagsetning sem leyfir mjög litla lýðræðislega umræðu og svo þessar tilraunir til að leyna gögnum. Eitt er þó ónefnt varðandi þessa dagsetningu sem hefur auðvitað mjög mikil áhrif á það umboð sem hér er verið að falast eftir. En það má ætla að á þessum árstíma, í ágúst, verði kosningaþátttaka töluvert minni en hún væri á árstíma þar sem flestir eru heima við að sinna sínum daglegu störfum auk þess að fylgjast með fjölmiðlum og taka þátt í eða a.m.k. fylgjast með stjórnmálaumræðunni. Annað sem varðar þessa dagsetningu er að það hefur sýnt sig að m.a.s. notkun samfélagsmiðla, svo ekki sé minnst á aðra fjölmiðla, er töluvert minni á sumrin en á öðrum árstímum. Allt bendir þetta því til þess að þátttaka í áformaðri þjóðaratkvæðagreiðslu yrði minni en ella.
Þá komum við aftur að því sem hefur verið nefnt eitthvað í umræðunni, að ég held, þ.e. hvernig hæstv. forsætisráðherra nálgaðist málið fyrir kosningar og talaði um að það þyrfti afgerandi stuðning við að fara í þetta ferli. Jafnvel var rætt um 70% í þjóðaratkvæðagreiðslu og þá væntanlega háð því að það sé þarna einhver lágmarksþátttaka. En þessi tímasetning sem valin var, væntanlega af hæstv. utanríkisráðherra eða hæstv. ráðherra í samráði við aðra sem eru að undirbúa þessa vegferð, virðist fyrst og fremst til þess ætluð að lágmarka umræðu og um leið jafnvel að lágmarka þátttöku.
Þá kem ég, herra forseti, að næstsíðasta kafla nefndarálits 2. minni hluta utanríkismálanefndar. Hann fjallar um vinnu nefndarinnar. Þá kem ég að því sem ég var aðeins byrjaður að impra á áðan í tengslum við asann á málinu og það er það að málið var ekki kynnt fyrir hv. utanríkismálanefnd áður en það var lagt fram eins og lög gera ráð fyrir. Því var einfaldlega sleppt. — Herra forseti. Ég verð að fara nánar yfir það í næstu ræðu og bið því um að verða settur aftur á mælendaskrá.