þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég kom aðeins inn á hér fyrr í kvöld þá umsögn sem Frosti Sigurjónsson sendi inn og drap nú bara rétt á fyrstu liðum í þeirri umsögn og hélt svo áfram að lesa. Það eru fleiri liðir í umsögninni frá Frosta Sigurjónssyni sem vert er að veita nokkra athygli, til að mynda, herra forseti, með leyfi, það sem fram kemur í 7. lið umsagnarinnar: Það er með millifyrirsögn í umsögninni: „Fáir vilja ganga í ESB eins og það er.“Svo kemur eftirfarandi texti, með leyfi forseta, sem er dálítið áhugaverður:
„Það heyrir til undantekninga að íslenskir aðildarsinnar vilji ganga í ESB eins og það er. Þeir segjast vilja skýrar undanþágur frá grundvallarreglum sambandsins …“
Ég vil ekki taka meira í einu vegna þess að ég túlka þessa umsögn, þessar fyrstu setningar hérna þar sem talað er um að fá skýrar undanþágur frá grundvallarreglum sambandsins — ég skil Frosta Sigurjónsson þannig að þarna sé hann að vísa til stofnsáttmála Evrópusambandsins, svo því sé haldið til haga, herra forseti. Og áfram, með leyfi forseta:
„… og líta á aðildarviðræður sem einu leiðina til að komast að því „hvað sé í boði“. Embættismenn ESB hafa aldrei alið á slíkum væntingum. Þeir hafa ítrekað sagt að varanlegar undanþágur séu ekki í boði fyrir umsóknarríki. Ríkisstjórnin hefur ekki lagt fram haldbær gögn um að þeir séu að segja ósatt.“ — Þ.e. fulltrúar Evrópusambandsins. — „Þess í stað vísar hún til sérlausna sem eru ekki varanlegar undanþágur frá regluverkinu og gætu fallið niður með meirihlutaákvörðun.“
Þarna skil ég aftur Frosta Sigurjónsson þannig að þegar hann vísar til undanþága frá meginregluverkinu sé hann að vísa til stofnsáttmála Evrópusambandsins. Þannig skil ég þessa umsögn.
Ég held þá áfram, með leyfi forseta:
„Í greinargerð með tillögunni segir: „Rétt er að láta á það reyna hvort ekki verði það sama uppi á teningnum í tilviki aðildarviðræðna Íslands þannig að aðildarríkin verði tilbúin að taka tillit til sértækra og mikilsverðra hagsmuna Íslands. Niðurstaða um þetta atriði mun þó aðeins fást með því að eiga eiginlegar aðildarviðræður við ESB.““
Þarna lauk beinni tilvitnun í greinargerðina og áfram heldur Frosti Sigurjónsson með sína umsögn, með leyfi forseta:
„Þetta er ekki sannfærandi. Það ætti einmitt að vera hægt að fá niðurstöðu í þetta grundvallaratriði án þess að fara í aðildarviðræður við ESB. Nefndin gæti sparað landsmönnum mikið umstang með því að senda erindi til Brussel og fá úr þessu skorið í eitt skipti fyrir öll.“
Þetta er enn einn aðilinn sem er, held ég að sé óhætt að fullyrða, bara mjög vel að sér í Evrópumálunum sem er að benda á það sem við bentum á hér strax við upphaf máls þar sem við hvöttum ríkisstjórnina til að senda erindi á Evrópusambandið með þessum tiltölulega afmörkuðu spurningum sem væru þá lykilatriði er varðaði það hvort Ísland ætti yfirleitt að hefja þessa vegferð og þyrfti yfirleitt að spyrja þjóðina hvort ætti að fara af stað, sem væru þá til að mynda spurningar um hvort það væri bara einhver grundvöllur fyrir því að ræða við Evrópusambandið, kommissarana þar, hvort til greina kæmi að fá varanlegar undanþágur frá stofnsáttmála Evrópusambandsins — ég legg áherslu á stofnsáttmála því að það er það eina sem heldur, ekki einhverja aðlögun eða sérlausnir — í málum eins og orkumálum og sjávarútvegsmálum, til að mynda bara hvernig valdskiptingin er í samfélaginu eða hvort dómsvaldið yrði hér áfram sjálfstætt. Ef það yrðu sendar út slíkar spurningar þá væri þessi umræða ekki bara á allt öðrum stað, hún væri líklega yfirleitt ekkert að eiga sér stað, herra forseti, því að ég held að við vitum öll, hvort sem við tilheyrum þeim hópi að aðhyllast aðild að Evrópusambandinu eða tilheyrum þeim hópi sem gerir það ekki, að svörin við þessum lykilspurningum hefðu ekki orðið: já, já og já.