þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég ætlaði aðeins að velta fyrir mér tímasetningu umræddrar þjóðaratkvæðagreiðslu. Hæstv. ríkisstjórn gerði í stjórnarsáttmála sínum ráð fyrir því að þessi atkvæðagreiðsla færi fram eigi síðar en 2027 en nú er gert ráð fyrir að þessi atkvæðagreiðsla fari fram á þessu ári, árið 2026, þ.e. ári fyrr. Til að glöggva mig betur á því hvers vegna þessi tímasetning er valin skoðaði ég aðeins umsögn Björns Bjarnasonar, fyrrverandi ráðherra, sem hann sendi utanríkismálanefnd. Ég ætla að lesa úr einum kafla þeirrar umsagnar, sem er ítarleg og greinargóð, hvað hann segir um tímasetninguna, með leyfi forseta:
„Í Morgunblaðinu 26. mars birtist frétt um opinn fund í utanríkismálanefnd Alþingis daginn áður. Þar segir að utanríkisráðherra hafi svarað spurningu um tímasetningu atkvæðagreiðslunnar á þann veg að ráðherrann „teldi mikilvægt að fara sem fyrst í viðræðurnar þar sem það væri „opinn gluggi“ núna og viðhorfið allt annað hjá ESB nú en árið 2009“.
Í frétt sem birtist á vefsíðunni POLITICO 30. mars 2026 er sagt frá uppnáminu sem orðið hefur í Evrópu vegna framgöngu Donalds Trump Bandaríkjaforseta á alþjóðavettvangi og meðal annars gagnvart Grænlandi. „Hluti af myndinni er geópólitíski óróinn,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra við POLITICO.
Utanríkisráðherra Íslands lítur á það sem „opinn glugga“ fyrir Ísland til að ganga inn í Evrópusambandið að spenna sé í samskiptum stjórnenda ESB og Bandaríkjastjórnar og því sé þetta heppilegasti tíminn fyrir Íslendinga að ganga til viðræðna við ESB um aðild, það kunni að verða of seint árið 2027, þá hafi glugganum verið lokað.“
Þarna kemur í ljós, menn lesa það úr þessum ummælum hæstv. utanríkisráðherra, að verið er að nýta sér einhvern óróa á alþjóðavettvangi og spennu vegna tilkomu Bandaríkjaforseta, Donalds Trumps, í embætti. Það er verið að nýta sér það til að bera undir þjóðina, einmitt á þeim tíma, þessa stóru ákvörðun um að ganga í Evrópusambandið. Þetta er náttúrlega, herra forseti, tækifærismennska. Það heitir ekkert annað en tækifærismennska að nýta sér svona tímabundið ástand. Bandaríkjaforsetar koma og fara og þeirra kjörtímabil er fjögur ár hverju sinni þannig að því lýkur ekki síðar en þá. Að nýta sér þetta til að ganga til liðs við Evrópusambandið — ríki ganga ekki svo létt úr Evrópusambandinu ef þau ákveða að fara þar inn og það er auðvitað svolítið lúalegt, ef ég má nota það orð, forseti, að menn nýti sér einhvern óróa á alþjóðasviðinu til þess. Í sömu umsögn Björns Bjarnasonar segir, með leyfi herra forseta:
„Í því felst skammsýni, ekki síst ef utanríkisráðherra Íslands telur það málstað sínum helst til framdráttar að ala á tortryggni í garð Bandaríkjastjórnar. Varnarsamstarf á vettvangi Evrópusambandsins eða við ríki innan þess kæmi aldrei í stað öryggistryggingarinnar sem felst í varnarsamningnum við Bandaríkin með NATO að bakhjarli.
Ráði neikvæð viðhorf í garð Bandaríkjastjórnar tímasetningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar er um ómálefnaleg sjónarmið að ræða sem draga úr hlutlægu gildi alls kynningarstarfs og vinna í reynd gegn íslenskum hagsmunum.
Ef tímasetning þjóðaratkvæðagreiðslunnar ræðst af skammtímapólitísku mati á „opnum glugga“ í alþjóðastjórnmálum fremur en vandaðri innlendri málsmeðferð er hún ómálefnaleg og stenst ekki þær kröfur sem gera verður til lýðræðislegrar ákvörðunar.“
Þetta er auðvitað hárrétt og einkennilegt að stjórnvöld hér og ríkisstjórnin, því að hæstv. ríkisstjórn ber auðvitað ábyrgð á þessu, skuli nýta sér eitthvert skammtímaástand í alþjóðamálum til að bera undir þjóðina samning sem mun binda íslensku þjóðina til langrar framtíðar, ef af verður. Það er auðvitað lúalegt, eins og ég nefndi hér áður. Ég óska eftir því að verða settur aftur á mælendaskrá.