157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[23:45]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Herra forseti. Mig langar að ræða aðeins núna greinargerðina með þessari tillögu utanríkisráðherra til þingsályktunar um aðlögunarviðræður að Evrópusambandinu. Greinargerðin er algert þunnildi, eins og ég hef margoft komið inn á. Þar er ekkert að finna varðandi samningsmarkmið, rauðar línur eða nokkurn skapaðan hlut sem gæti komið þjóðinni að gagni við að taka ákvörðun um hvort hún vilji aðlögunarviðræður við Evrópusambandið, fyrir utan að hæstv. utanríkisráðherra hefur þegar verið gerð afturreka með orðalag tillögunnar.

Mig langar að fara aðeins í greinargerðina og draga nokkur atriði fram. Þar vantar mikið af upplýsingum. Eins og ég kom inn á hérna áðan þá vantar lykilupplýsingar. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðum ESB, það er mjög auðvelt að lesa þær, þá verða ríki sem óska inngöngu í Evrópusambandið að leggja fram samningsmarkmið. Þetta er hvergi að finna í þessari tillögu eða meirihlutaáliti utanríkismálanefndar. Að mínu viti er það óboðlegt að þjóðin fái ekki upplýsingar um hver samningsmarkmið Íslands verða áður en henni er ætlað að greiða atkvæði um þessa þingsályktunartillögu utanríkisráðherra sem við ræðum hér um aðlögunarviðræður að ESB. Mér finnst það fullkomlega óboðlegt. Jafnvel þótt fylgjendum þessarar þingsályktunartillögu takist að blekkja þjóðina með því að hægt sé að kíkja í pakkann, já, kíkja í pakkann, þá er algjört lágmark að þjóðin viti hvað ríkisstjórnin vonast eftir að finna í þessum pakka. Hvað vonast ríkisstjórnin til að finna í þessum pakka? Mér er það ekki ljóst.

Fyrrverandi forseti Alþingis, Birgir Ármannsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, benti á í grein í Morgunblaðinu 30. mars síðastliðinn að utanríkismálanefnd Alþingis árið 2009 hafi haft metnað til að setja ríkisstjórninni samningsmarkmið sem þýddi að það varð að vera ákveðið lágmark í pakkanum. Þetta var þó gert af Jóhönnustjórninni hinni fyrri. Í greinargerð tillögunnar sem við fjöllum hér um segir, með leyfi forseta:

„Það er mat ríkisstjórnarinnar að áframhald aðildarviðræðna við ESB“ — það segir aðildarviðræðna en auðvitað á að tala um aðlögunarviðræður — „sé svo viðamikið hagsmunamál að ekki komi annað til greina en að leita leiðsagnar þjóðarinnar í þeim efnum.“

Það er laukrétt að hér eru í húfi gríðarlega miklir hagsmunir þjóðarinnar verði Ísland aðili að þessu Evrópusambandi, ef þessi blekkingaleikur tekst. En hverjir eru þessir hagsmunir? Hagsmunirnir snúa m.a. að auðlindum, fullveldi, sjálfstæði, öryggi, hvers kyns öryggi, m.a. fæðuöryggi o.s.frv.

Þessi ríkisstjórn sem segist treysta þjóðinni, treystir þjóðinni, ég vil segja: Vantraust ríkisstjórnarinnar gagnvart þjóðinni er algert þar sem ekki stendur til að kynna fyrir þingi og þjóð þá hagsmuni sem fylgismenn þessarar tillögu, þá sérstaklega utanríkisráðherra Viðreisnar, lofa að verja og tryggja til framtíðar. Hvaða grundvallarhagsmunir eru þetta? Það kemur hvergi fram. Það eru hvergi finnanleg samningsmarkmið, það eru hvergi finnanlegar rauðar línur. Maður veltir því fyrir sér hvort ástæðan fyrir því að það er ekki upplýst um þetta geti verið sú að ríkisstjórninni sé að fullu kunnugt um að það liggur fyrir af hálfu ESB t.d. að það eru engar varanlegar undanþágur frá þessu regluverki. (Forseti hringir.) — Ég óska eftir því að vera sett aftur á mælendaskrá, herra forseti.