157. löggjafarþing — 111. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[00:20]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég ætla í þessari ræðu minni að segja nokkur orð um framtíðartækifærin sem við verðum af yrði niðurstaðan sú að þjóðin segði já í atkvæðagreiðslu, fari hún fram 29. ágúst eða síðar eftir atvikum, og aðlögunarferli myndi hefjast. Við vitum að þeir sem halda á því eru vægt til orða tekið miklir áhugamenn um inngöngu Íslands í Evrópusambandið og þá er auðvitað, a.m.k. gagnvart mörgum þeirra, lítill trúverðugleiki í orðunum: Ég er ekki að fara að greiða atkvæði með einhverjum samningi sem mér líst ekki á, því þeir sem ganga harðast fram í stuðningi við það að Ísland gangi í Evrópusambandið, fari í þetta aðlögunarferli sem fram undan er, verði sagt já í þjóðaratkvæðagreiðslunni hinni fyrri, vita alveg hvað snýr upp og niður í þessu. Þeir aðilar átta sig alveg á að árin fram undan eru aðlögunarferli þar sem íslenskt efnahagslíf, íslenskt regluverk og íslenskt stofnanakerfi aðlagar sig jafnt og þétt að því sem Evrópusambandið fyrirskrifar. Þess vegna er þessi ofuráhersla á að tala um atkvæðagreiðsluna 29. ágúst eða hvenær sem hún verður með þeim hætti sem gert er allt annað en raunveruleikinn. Það er talað um þetta eins og það sé verið að kíkja í pakkann, sjá hvað standi til boða, eigum við ekki að treysta almenningi? Það er allt annað sem fer af stað verði niðurstaðan já í lok ágúst eða einhverju síðar ef þannig atvikast. Þetta vita þeir best sem ganga harðast fram í því að sannfæra fólk um að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni hinni fyrri.

Framtíðartækifærin sem renna okkur úr greipum strax við þá þjóðaratkvæðagreiðslu eru t.d. mjög áhugaverðar vangaveltur um fríverslun og nánari samstarfssamninga milli þjóða hér við Norður-Atlantshafið, Íslands, Grænlands og Færeyja, svo dæmi sé tekið. Slíkir samningar verða með allt öðrum hætti. Þeir verða á forsendum Evrópusambandsins strax, leyfi ég mér að fullyrða, verði sagt já í þjóðaratkvæðagreiðslunni vegna þess að það er ekki hægt að hugsa sér þá stöðu að íslensk stjórnvöld fari fram með nýja slíka samninga á aðlögunartímanum sem verður í gangi þarna, hvort sem hann verður 12–18 mánuðir, eins og mér heyrist hæstv. utanríkisráðherra hafa væntingar um, eða átta ár eins og raunin var í Króatíu, ef ég man rétt.

Það verður ekkert nýtt slíkt samstarf, samningar, rammað inn á þeim tíma og augljóslega alls ekki eftir að Ísland yrði komið inn í Evrópusambandið, sem er auðvitað markmið þessarar vegferðar og þeir mega eiga það, kontóristarnir í Brussel, að þeir eru alveg heiðarlegir með það. Þar dettur ekki nokkrum manni til hugar að það sé verið að kíkja í pakkann, sjá hvað er í boði og ég er nokkuð viss um að hæstv. utanríkisráðherra orðar það ekki þannig á fundunum í Brussel. Það hvarflar raunar ekki að mér að hæstv. ráðherra orði það með þeim hætti. Það breytist allt, verði niðurstaðan já þarna í lok ágúst eða einhverjum vikum síðar ef þannig verkast. Það breytist a.m.k. gríðarlega margt. Eitt af því er svigrúm okkar í utanríkismálum, það verður í raun gjörbreytt hvað varðar slíka samninga, eins og ég nefndi hér varðandi aukið samstarf Grænlands, Íslands og Færeyja, og eftir atvikum mögulega fleiri aðila strax eða eftir því sem fram í sækir. Þetta fer allt út af borðinu strax. Stuðningsmönnum málsins er tíðrætt um tækifæri unga fólksins. Viljum við taka það tækifæri af ungu kynslóðunum að hér formist þéttara samband þessara vinaþjóða; Íslands, Færeyja og Grænlands, svo dæmi sé tekið? Ég held að svarið við þeirri spurningu sé hjá flestum nei.