157. löggjafarþing — 111. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[00:25]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Herra forseti. Við búum við ríkisstjórn sem er búin að svíkja öll sín kosningaloforð. Þau lofuðu að lækka skatta, taka til og negla niður vexti og verðbólgu og að þau myndu ekki kljúfa þjóðina með Evrópusambandsvegferð. Skattar hafa verið hækkaðir, útgjöld hafa verið aukin, vextir og verðbólga eru á uppleið og nú hefur verið ákveðið að kljúfa þjóðina með Evrópusambandsaðild. Ef þetta væri allt og sumt þá væri það betra. En svo er ekki. Þessi ríkisstjórn hefur ráðist að öllum grunnatvinnuvegum þjóðarinnar. Sjávarútvegurinn fékk fyrsta sparkið. Ferðaþjónustan og auðvitað heimili landsins, ásamt fyrirtækjum landsins heilt yfir, hafa fengið að finna fyrir þessari ríkisstjórn á eins neikvæðan hátt og enginn hefði getað ímyndað sér þegar hann hlustaði á kosningaloforð ríkisstjórnarinnar.

En ég vil fá að halda áfram með það sem ég var byrjuð á áðan sem eru helstu lykilpunktar úr mjög mikilvægri skýrslu sem er áhugaverð og fólk ætti endilega að kynna sér. Þetta er skýrsla eftir Hjört J. Guðmundsson sem heitir „Vitanlega er ESB ekki lokaður pakki“. Þetta er byggt á staðreyndum og það má finna heimildir með því að fara inn á heimasíðu hjá Hirti J. Guðmundssyni. Ég endaði hér áðan með vísun til þess sem kemur fram í skýrslunni, að umsóknarríki þurfi að taka upp allt regluverk ESB sem lýst er sem u.þ.b. 100.000 bls. af reglum og skuldbindingum. Ég held að íslensku atvinnulífi og heimilum þyki nú nóg um það sem við erum að taka upp í gegnum EES. Samkvæmt skýrslunni eru varanlegar undanþágur ekki í boði fyrir ný aðildarríki og hugsanlegar sérlausnir yfirleitt aðeins tímabundnir aðlögunarfrestir með skýrum lokatíma. Engu að síður er þessi ríkisstjórn aftur og aftur að tala um það að kosningarnar í haust snúist um það að kíkja í einhvern pakka. Það er ekki að ástæðulausu sem við köllum þetta blekkingar vegna þess að ekkert ríki hefur fengið varanlegar undanþágur undanfarna áratugi. Það voru veittar varanlegar undanþágur á tíunda áratugnum. Þá erum við að tala um undanþágur eins og Danmörk fékk fyrir einhverjar sumarbústaðabyggðir og það var í samningi við Evrópubandalagið, ekki Evrópusambandið eins og það er í dag. Einnig er okkur sagt að við getum fengið að velja úr, bara taka það góða og sleppa því slæma, held ég, og við verðum komin inn í Evrópusambandið eftir tvö ár. Þetta er auðvitað eitthvað sem er ekki sannleikanum samkvæmt því að Evrópusambandið myndi ekki virka ef eitt ríki, Ísland, fengi varanlegar undanþágur vegna þess að ef einhver ríki fá varanlegar undanþágur þá þurfa hin 27 ríkin að samþykkja það. Af hverju ættu til að mynda sjávarútvegsþjóðir Evrópusambandsins að samþykkja það að Ísland eitt ríkja fái undanþágur sem þær hafa ekki fengið?

Það segir sig sjálft, herra forseti, að þetta nær engri átt og það sem við erum að fara að kjósa um í haust er hvort þjóðin vilji ganga inn í Evrópusambandið eða ekki. Við erum ekki að fara að kjósa um það að kíkja í einhvern pakka. Það sækir enginn um aðild að Evrópusambandinu sem ekki vill fara inn í Evrópusambandið. Það sem við erum að gera í haust ef við segjum já er að sækja um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Nú kunna einhverjir að segja: Nei, nei, við erum bara að kíkja í pakkann, af því að það er búið að tyggja það svo oft ofan í þjóðina. En þá bendi ég þeim á að skoða þingsályktun frá 2009 þegar við stóðum í þessum viðræðum síðast og þar stendur skýrt að Ísland ætli að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Þetta er þingsályktunin sem við erum að fara að byggja á núna. Þetta er sú þingsályktun sem vinnan byggir á. Við höfum enga hugmynd um það hvar þessi ríkisstjórn mun draga rauðu strikin, hvað má semja um, þannig að ég minni á, (Forseti hringir.) herra forseti, að í haust kjósum við um hvort við viljum ganga inn í Evrópusambandið eða ekki. — Ég óska eftir að vera sett aftur á mælendaskrá þar sem ég hef ekki lokið máli mínu.