157. löggjafarþing — 111. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[00:36]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Þingmenn Miðflokksins hafa ítrekað óskað eftir því að þingmenn, aðrir en þeir sem sitja í hv. utanríkismálanefnd, fái aðgang að gögnum sem utanríkisráðuneytið lagði þar fram en batt gögnin trúnaði. Þannig hefur það verið að einungis nefndarmenn í hv. utanríkismálanefnd hafa haft aðgang að þessum gögnum hafi þeir undirritað trúnað. Hér fyrir stuttu las forseti hins vegar upp erindi frá þingflokksformanni Samfylkingarinnar þess efnis að óskað væri eftir því af hans hálfu að forseti hlutaðist til um það að öðrum þingmönnum gæfist kostur á að kynna sér þessi gögn undir trúnaði. Hefur hæstv. forseti nú orðið við þeirri ósk og það liggur þar með fyrir að allur þingheimur getur kynnt sér þessi gögn á morgun. Það er ástæða til að þakka forseta fyrir að hafa brugðist við þessu erindi sem þingmenn Miðflokksins hafa haldið hér á lofti í nokkra daga, allar götur reyndar síðan þessi gögn voru lögð fram í hinu svokallaða leyniherbergi. En nú liggur það fyrir að öllum þingmönnum gefst tækifæri til þess að kynna sér þessi gögn og það munu þingmenn Miðflokksins gera í fyrramálið, einhverjir þeirra a.m.k., og í framhaldinu halda áfram þessari umræðu sem hér hefur farið fram á morgun. Ég vænti þess að hæstv. utanríkisráðherra taki þátt í þeirri umræðu og aðrir ráðherrar líka, eins og ég hef hvatt ráðherra til þess að gera, að koma hér inn í þingsal, gera grein fyrir sinni afstöðu og þeim samningsmarkmiðum sem þeir sjá fyrir sér varðandi sína málaflokka, gera grein fyrir þeim fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna, áður en þessi þjóðaratkvæðagreiðsla hefst, fari hún fram í lok ágúst.

Að þessu sögðu, virðulegur forseti, skilst mér að þessum þingfundi verði frestað en ég hlakka til umræðunnar sem heldur áfram á morgun.