markmið með þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Mér þykir miður ef ég hef verið óskýr í þessari framsetningu en í mínum huga er þetta bara frekar einfalt mál. Það verður þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst og ef við fáum til þess umboð hjá þjóðinni munum við hefja á ný viðræður við Evrópusambandið um aðild svo við fáum að sjá samning. Það liggur í hlutarins eðli að við göngum út frá því að við fáum góðan samning vegna þess að við ætlum að nýta þetta umboð til góðra verka og við viljum fá samningsniðurstöðu í takt við okkar samningsmarkmið. Það hlýtur að vera útgangspunktur okkar allra hér inni að við höldum okkur við þessi samningsmarkmið. Það er alveg skýrt að þessi atkvæðagreiðsla snýst um að fá umboð til samninga. Ég held að við ættum ekki að vera að hengja okkur í orðhengilshátt hér inni. Við ætlum að ganga frá góðum samningi. Þjóðin mun eiga fyrsta orðið í þessu og hún mun eiga síðasta orðið í þessu. Við munum ganga hratt og örugglega til verks en það verður að vera í takt við þau samningsmarkmið sem við stöndum frammi fyrir. Það er útgangspunktur þessara viðræðna. Við erum að fá umboð til að semja, við hefjum samningaviðræður og við ætlum að ljúka þeim með góðum samningi. Það liggur í hlutarins eðli, eins og í öllum samningum, að það þarf að taka mið af því hvort við náum að fylgja þeim markmiðum eða ekki. En í lok dags er það þannig að það er útgangspunktur þessarar viðræðna; að fá góðan samning og leggja hann fyrir þjóðina. Það liggur alveg fyrir um hvað þessi atkvæðagreiðsla snýst.