markmið með þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður.
Virðulegi forseti. Það er ekki orðhengilsháttur þegar hæstv. utanríkisráðherra segir eitthvað allt annað en gögnin segja. Þetta svar hæstv. forsætisráðherra hér er bara ekki í nokkru samræmi við það sem hæstv. utanríkisráðherra hefur sagt. Hæstv. forsætisráðherra þykir miður að hafa verið óskýr en málið verður enn óskýrara þegar afstaða hæstv. forsætisráðherra bætist nú hér við, þegar hæstv. utanríkisráðherra segir að þjóðin sé að kjósa um að klára samning. Meiri hluti utanríkismálanefndar segir að stjórnin sé ekki skuldbundin til að ljúka samningi og hæstv. forsætisráðherra hefur sagt að hún muni ekki leggja samning fyrir þjóðina nema hún hafi sjálf trú á honum, að hún muni ekki leggja vonlausan samning fyrir þjóðina. Þetta eru þrenn ólík skilaboð frá sömu ríkisstjórn (Forseti hringir.) og þarna hefur verið settur fleygur inn í ferlið. Þjóðinni er sagt að hún fái að sjá hvað er í boði en síðan kemur í ljós að forsætisráðherra ætlar sjálf að ákveða hvort þjóðin (Forseti hringir.) fái yfirhöfuð að sjá einhverja niðurstöðu. Það eru ekki lokaorð þjóðarinnar, virðulegi forseti, það er pólitískt neitunarvald forsætisráðherra áður en þjóðin fær orðið. (Forseti hringir.) Er það að treysta þjóðinni? Því spyr ég aftur: Mun þjóðin fá að sjá þann samning sem kann að nást og greiða um hann atkvæði eða fær þjóðin aðeins að sjá samninginn ef forsætisráðherra (Forseti hringir.) hefur fyrst ákveðið að hann sé nógu góður fyrir þjóðina?
(Forseti (ÞSv): Forseti bendir á að í seinni umferð óundirbúinna fyrirspurna er ræðutíminn ein mínúta.)