157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

markmið með þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður.

[10:38]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ef samningur næst fær þjóðin að sjálfsögðu að sjá þann samning. Þessi atkvæðagreiðsla snýst um það hvort við fáum umboð til að semja út frá samningsmarkmiðum sem rætt er um í þingsályktunartillögu, út frá útfærðum samningsmarkmiðum sem verður líka tekið mið af eftir innlent samráð í haust. Við göngum út frá því að við fáum góðan samning. Við þurfum hins vegar að hefja samningaviðræður. Um það snýst þessi atkvæðagreiðsla. Sendum boltann til þjóðarinnar. Hefjum leika. Förum í samningaviðræður. Ef samningar nást mun þjóðin að sjálfsögðu hafa lokaorðið. Það er útgangspunktur þessarar ríkisstjórnar að klára þessa samninga. Fyrsta skrefið er að hefja viðræður. Um það snýst atkvæðagreiðslan í haust. Leyfum þjóðinni að ákveða hvort við förum í það skref eða ekki.