möguleg áhrif erlendra aðila á þjóðaratkvæðagreiðslu.
Frú forseti. Í ljósi umræðunnar hérna áðan bendi ég hæstv. forsætisráðherra á að miðað við uppleggið verður hæstv. utanríkisráðherra ekki bundinn af neinu í hugsanlegum viðræðum sínum við Evrópusambandið því að það eru engin rauð strik, engin skilyrði. Það var þó reynt síðast en þá hófust viðræður líka án tillits til þeirra enda sögðu fulltrúar Evrópusambandsins: Menn sækja ekki um aðild að Evrópusambandinu með skilyrðum. Og þeir neituðu að taka tillit til þeirra. Það fór eins og það fór. Viðræðurnar sigldu í strand fyrir vikið. Hér eru þó ekki þær varnir sem þá voru. En hvað um það, ég ætla að spyrja hæstv. forsætisráðherra um annað.
Hæstv. utanríkisráðherra fór í viðtal við breska blaðið The Guardian, auðvitað, og ræddi þar um áformaða þjóðaratkvæðagreiðslu og áhyggjur sínar af áhrifum erlendra aðila, þar með talið með aðstoð tækninnar. Þetta atriði kom upp strax á blaðamannafundinum þegar hæstv. ráðherrar kynntu málið fyrst og þar var bent á að eini aðilinn sem væri vitað að ætlaði að skipta sér af væri Evrópusambandið sjálft. Hæstv. ráðherrar létu eins og þetta kæmi þeim mjög á óvart en ef sú yrði raunin þá yrði tekið á því. Og nú spyr ég hæstv. ráðherra, því að það hefur komið í ljós við meðferð málsins að meira að segja í forsendum Evrópusambandsins fyrir þeim viðræðum sem nú stendur til að reyna að endurvekja ætli sambandið að reyna að hafa áhrif á almenningsálitið á Íslandi: Verður það liðið af hálfu hæstv. forsætisráðherra og ríkisstjórnarinnar eða verður slíkum tilraunum af hálfu Evrópusambandsins mætt á sama hátt og hugsanlegum slíkum tilraunum einhverra annarra?