möguleg áhrif erlendra aðila á þjóðaratkvæðagreiðslu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég held að við getum bæði tekið undir mikilvægi þess að við pössum upp á að umræðan, bæði í aðdraganda þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu og líka eftir hana, óháð því hvernig niðurstaðan verður, verði málefnaleg og á forsendum okkar Íslendinga. Nú veit ég kannski ekki nákvæmlega í hvað hv. þingmaður er að vitna, verð ég að viðurkenna, hvort það séu einhver sérstök ummæli frá Evrópusambandinu eða annað. Hann getur kannski komið inn á það hérna á eftir. Ég verð hins vegar að segja að við skulum hafa það alveg á hreinu að ef við fáum umboð til að semja við Evrópusambandið þá þurfum við að tala við Evrópusambandið. Í aðdraganda þessarar atkvæðagreiðslu er alls konar áhugi, m.a. úr þessum þingsal og hér á þinginu, um skoðanir Evrópusambandsins sem samningsaðila á hinum og þessum hlutum. Það er sá aðili sem við erum í samtali við og verðum í samtali við. Þaðan er verið að óska m.a. eftir upplýsingum. Þaðan er verið að, ja, svona forvitnast fyrir fram um ákveðna afstöðu. Fólk á ekki að láta það koma sér á óvart ef aðilar frá Evrópusambandinu eru spurðir þessa dagana um ákveðna hluti að þeir svari, enda eru þeir væntanlegir, mögulegir, samningsaðilar, þ.e. aðilar máls. Ég geri a.m.k. ekki athugasemd við að aðilar innan Evrópusambandsins, ef aðspurðir, ræði eitthvað um sína afstöðu til mála. En þau hafa verið alveg skýr á því að þessi atkvæðagreiðsla ein og sér sé innanlandsmál. En ef fólk er forvitið um afstöðu til einstakra þátta, hvernig samningar gætu farið fram og annað, þá finnst mér ekkert óeðlilegt við að þeir tjái sig um það ef aðspurðir. Það kann vel að vera að hv. þingmaður sé að vitna í eitthvað annað og hann getur þá endurtekið það hér.