157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

möguleg áhrif erlendra aðila á þjóðaratkvæðagreiðslu.

[10:43]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Ég er hér að vitna í mesta grundvallarskjal málsins, samningsafstöðu Evrópusambandsins, forsendur Evrópusambandsins fyrir þeim viðræðum sem nú er leitast við að endurvekja. En það er ekkert skrýtið að hæstv. forsætisráðherra kannist ekki við þetta skjal af því að því var haldið leyndu. Það var ekki tekið fyrir í utanríkismálanefnd. Það birtist í fjölmiðlum eins og svo margt annað í þessu máli sem hefur verið til upplýsinga fallið. En spurningin er þessi — og þetta hefur komið fram víðar en í fyrrnefndu skjali, þetta lá fyrir áður en fyrrnefndur blaðamannafundur var haldinn, að Evrópusambandið hefur beinlínis lýst því yfir að það ætli að leitast við að hafa áhrif á almenningsálitið á Íslandi í aðdraganda hugsanlegrar þjóðaratkvæðagreiðslu. Og er það ásættanlegt að mati hæstv. forsætisráðherra, sem ég geri ráð fyrir að vilji ekki önnur erlend afskipti? Er forsvaranlegt að Evrópusambandið ætli að fara í slíkt? Til þessa höfum við helst séð til Viðreisnarbottanna svokölluðu í þessum efnum. Þá er ég ekki að halda því fram að þeir séu reknir af Viðreisn en þeir eru mjög viðreisnarsinnaðir, frú forseti, og tala máli þess flokks. Þurfum við að hafa áhyggjur af Evrópusambandsbottum og öðrum afskiptum Evrópusambandsins sjálfs af afstöðu almennings til þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu?