möguleg áhrif erlendra aðila á þjóðaratkvæðagreiðslu.
Frú forseti. Ég verð að vera heiðarleg. Ég hef ekki séð yfirlýsingar af hálfu Evrópusambandsins um að það ætli sér að hafa áhrif á almenningsálitið. Það liggur fyrir að þessi vegferð sem við erum að fara í er óvenjuleg, enda hefur Ísland oft farið sínar eigin leiðir. Það hefur ekki áður verið farin sú leið í samskiptum við Evrópusambandið í aðdraganda svona viðræðna að það sé kosið fyrst um hvort það eigi að hefja aðildarviðræður. Í gegnum tíðina hafa þjóðir, bæði hér og í öðrum löndum, einfaldlega hafið aðildarviðræður og síðan hefur verið kosið þannig að þetta er líka nýtt fyrirbæri fyrir Evrópusambandið. Ég hef ekki séð það sækjast eftir því að hafa áhrif á þessa atkvæðagreiðslu. Þau átta sig á mikilvægi málsins og að þetta sé á vegum Íslendinga en, eins og ég segi, ef þau eru aðspurð um einhverja þætti aðildarviðræðna þá er ekkert óeðlilegt (Forseti hringir.) að þau svari af því að þau eru hugsanlegir aðilar máls. En ég þekki ekki þessi afskipti.