157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

afstaða ráðherra til samningsmarkmiða Íslands í aðildarviðræðum við ESB.

[10:49]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Það er auðvitað rétt að komi til þess að þjóðin segi að hún vilji láta á það reyna hvaða tækifæri bíði okkar sem þjóðar innan Evrópusambandsins þá liggur auðvitað fyrir að einn af þeim köflum sem verða opnaðir fyrstir er meðal annarra sjávarútvegskaflinn. Það verður ekki farin sú leið sem var farin síðast, að geyma þá kafla sem ég held að við séum öll sammála um að skipti einna mestu máli og það eru þeir sem lúta að yfirráðum okkar yfir náttúruauðlindum okkar. Það liggur alveg ljóst fyrir að við munum ekki hvika frá því. Ég er sannfærð um, í ljósi þess sem við þó vitum núna, að það hefur engin þjóð sótt um aðild að Evrópusambandinu sem hefur slíka sérstöðu eins og við í sjávarútvegsmálum, ekki bara vegna þess hversu stór hluti þetta er af okkar hagkerfi og mikilvægur heldur líka vegna þess að um er að ræða staðbundna stofna að mjög miklu leyti, nokkuð sem hin sameiginlega sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins byggir ekki á. Okkar sjávarútvegsstefna verður að vera lykillinn í því hvernig við nálgumst þessi mál og af samtölum sem ég hef tekið í starfi mínu sem sjávarútvegsráðherra við aðra sjávarútvegsráðherra frá því að ég tók við embætti, og lúta bara að almennum samskiptum, hefur komið skýrt í ljós að þeir líta með mikilli aðdáun til þess árangurs sem við höfum náð í sjávarútvegsmálum og hafa margir jafnvel fleygt því fram svona í hálfkæringi að það væri sannarlega þess virði að læra af okkur hvernig við umgöngumst auðlindir sjávar, með kvótasetningunni, með því hvernig við höfum lagt áherslu á sjálfbærni í sjávarútvegi og síðan tæknina. Það er því miklu frekar þannig (Forseti hringir.) að í þessum samningaviðræðum erum við sterki aðilinn. Við munum ekki gefa eftir og við þekkjum það líka, og ég verð nú að koma að því á eftir, að í ljósi þessarar nálgunar Evrópusambandsins á reynslu af veiðum úr staðbundnum stofnum eru erlendar þjóðir ekki að fara að koma hingað inn og hirða af okkur fiskinn eins og stundum heyrist.