afstaða ráðherra til samningsmarkmiða Íslands í aðildarviðræðum við ESB.
Virðulegur forseti. Allt er þetta satt og rétt hjá hæstv. atvinnuvegaráðherra. Það er full ástæða fyrir önnur ríki og sérstaklega Evrópusambandið að líta aðdáunaraugum til fiskveiðistjórnarkerfisins hér og hvernig við höfum haldið á málum núna í mörg ár og áraraðir. Það eru tækifæri fyrir Ísland til að selja Evrópusambandinu þessar upplýsingar og þessa þjónustu og hjálpa því til að koma skikki á sín mál. Ég er hins vegar ekki að spyrja um það. Ég er að spyrja einfaldrar spurningar: Er hæstv. atvinnuvegaráðherra tilbúinn til að lýsa því yfir gagnvart þjóð sinni fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu að samningsmarkmið Íslands í þessum efnum verði 100% varanlegar undanþágur frá sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins og öðrum lögum Evrópusambandsins sem lúta að nýtingu auðlinda hafsins? Þetta er ein spurning. Ég ætla að bæta við annarri: Getur hæstv. ráðherra upplýst þingið um það hvaða reglur og lög gilda (Forseti hringir.) um t.d. hvalveiðar í Evrópusambandinu?