samningsmarkmið í viðræðum við Evrópusambandið.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og fyrir að vekja athygli á því að málið hefur sannarlega tekið breytingum í meðförum þingsins. Það hefur verið hlustað á landskjörstjórn og Feneyjanefnd og það er búið að vinna málið vel. Því hefur einmitt verið tekið alvarlega að spurningin sé skýr. Það var leitast eftir því að fá viðbrögð landskjörstjórnar og Feneyjanefndar við spurningunni. Spurningin felur í sér hvort við eigum að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Það er spurningin. Á bak við þá spurningu eru samningsmarkmið sem hljóta að vera útgangspunktur þessara viðræðna. Það verður ekki persónulegt mat einstaklinga í ríkisstjórn, það eru samningsmarkmið sem við viljum fylgja. Það er útgangspunkturinn. Eins og ég sagði hér áðan er kjarni máls, pólitíkin í þessu máli, sem er eðlilega viðkvæm og er víða viðkvæm, ekki bara hér á Íslandi heldur í öðrum löndum, hvort Ísland eigi heima í Evrópusambandinu eða ekki. Kjarni máls er þessi: Ísland gengur ekki í Evrópusambandið nema eftir tvær atkvæðagreiðslur sem fela í sér að þjóðin verður spurð og það þarf að fá já út úr báðum atkvæðagreiðslum. Við erum að fara í fyrsta skrefið: Eigum við að hefja þetta ferli eða ekki? Eigum við að ganga út frá samningsmarkmiðunum eins og þeim er stillt upp núna eða ekki? Um það snýst málið.