samningsmarkmið í viðræðum við Evrópusambandið.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra svarið. Það er eitt sem er alveg skýrt í þessu, að Ísland gengur ekki í Evrópusambandið nema að loknum tveimur atkvæðagreiðslum, það er skýrt. En það sem er þarna á milli er ekki alveg skýrt. Og, virðulegur forseti, þessi samningsmarkmið eru alls ekki skýr, það er það sem við höfum verið að kalla eftir. Við vitum ekki enn nákvæmlega hver samningsmarkmiðin eru. Í áliti Feneyjanefndarinnar segir eftirfarandi, með leyfi forseta:
„Í þessu sambandi vill nefndin leggja áherslu á að ekki er hægt að fjalla um skýrleika spurningarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu aðskilið frá skyldunni til að upplýsa kjósendur ítarlega um þær aðgerðir sem ríkisstjórnin grípur til eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna á grundvelli niðurstöðu hennar.“
Einhverra hluta vegna hefur meiri hlutinn þó eingöngu veitt kjósendum upplýsingar um ferli sem tekur við verði svarið í þjóðaratkvæðagreiðslunni í haust já, þótt þær hafi vissulega verið misvísandi. Engar upplýsingar er hins vegar að fá um það hvaða ferli fer af stað hafni þjóðin þessari vegferð ríkisstjórnarinnar í haust og engar upplýsingar um það hvers vegna ríkisstjórnin kýs að hunsa þessi fyrirmæli Feneyjanefndarinnar.
Ég vil því spyrja hæstv. forsætisráðherra: Ef þjóðin segir nei í ágúst, mun ríkisstjórnin þá draga aðildarumsókn Íslands til baka í ljósi þeirrar afstöðu hennar að umsóknin frá 2009 sé enn í gildi?