157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

samningsmarkmið í viðræðum við Evrópusambandið.

[11:07]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Við erum hér að ræða um þjóðaratkvæðagreiðsluna í haust, hvað gerist ef við fáum já út úr þeirri atkvæðagreiðslu og hvað gerist ef við fáum nei út úr þeirri atkvæðagreiðslu. Varðandi það hvort aðildarumsóknin sé virk eða ekki þá hef ég reyndar heyrt að fólk sé ósammála inni í þessum sal um hvort hún sé virk eða ekki. Nú er fólki mikið í mun að hún verði dregin til baka þó að hún hafi talist óvirk. Ég verð að segja það hér að það hefur ekki, og það er bara hreinskilið svar enda hef ég enga ástæðu til að segja annað, farið fram nein sérstök umræða um það í ríkisstjórn hvað verði gert með þessa virku umsókn. Það sem liggur hins vegar fyrir og hlýtur að vera það sem þjóðin þarf að heyra er: Það verður ekki gengið inn í Evrópusambandið hér án þess að þjóðin fái tvær atkvæðagreiðslur. Það er kjarni máls. Þessi umsókn hefur verið í dvala allan þennan tíma, m.a. á tíma (Forseti hringir.) flokks hv. þingmanns, og ekkert við hana gert, engar afleiðingar verið af því að hún hafi verið í dvala. Aðalmálið er: Það verður ekki gengið inn í Evrópusambandið nema eftir tvöfalda atkvæðagreiðslu á vegum þjóðarinnar.