þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Hér ræðum við tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðlögunarviðræður Íslands að Evrópusambandinu. Raunar er þessi umræða allt of stutt og við höfum lítið komist í annað en að ræða hér ferli og umgjörð og upplýsingaleysi af hálfu þeirra sem leggja þessa tillögu fram. Ég held að það hefði verið best fyrir alla, ekki síst þá sem eru að leggja þessa þingsályktunartillögu fram, ef það væri gefinn rúmur tími fyrir umræðu vegna þess að það er fjölmargt sem þyrfti að ræða, t.d. allir efniskaflar væntanlegra aðlögunarviðræðna ef þessi þingsályktunartillaga verður samþykkt, þ.e. ef þjóðin ákveður í þjóðaratkvæðagreiðslunni að heimila ríkisstjórninni að fara í þessar aðlögunarviðræður. Það á nú reyndar eftir að koma í ljós. Ég velti því fyrir mér hvernig ástandið er innan ríkisstjórnarinnar. Það er einn flokkur sem virðist bera þetta mál uppi og líkt og árið 2009 þá misheppnaðist vegferðin sem hófst með einum flokki, í þetta skiptið er það Flokkur fólksins sem er yfirlýstur andstæðingur inngöngu í ESB. Fulltrúar þess flokks hafa forðast að koma hér í pontu og tjá sig um málið enda skilst manni að þetta sé partur af samkomulagi eða díl innan ríkisstjórnarinnar, kaup kaups, og þetta virðist vera límið sem heldur þessari ríkisstjórn saman.
Þá má líka velta því fyrir sér hvort Evrópusambandinu hafi verið gerð grein fyrir því að pólitísk hrossakaup með ráðherrastóla er ástæða þess að málið er á dagskrá þingsins en ekki að ríkisstjórnin í raun standi á bak við málið og að meiri hluti sé fyrir því hér á þingi. Það er ekki meiri hluti fyrir þessu máli á þingi. Það er ekki meiri hluti fyrir þessu í ríkisstjórn Íslands. Þetta eru kaup kaups. Þetta er díll. Ef sendinefnd Evrópusambandsins er að fylgjast með þessari umræðu væri nú fínt að hún myndi gefa skýrslu um það til Brussel hvers vegna málið er hér á dagskrá. Ég vil minna á það að almennt nýtur t.d. EES-samningurinn stuðnings í íslensku samfélagi og það er augljóst flestum, nema ríkisstjórninni, að það er eðlilegast að starfa áfram á grunni hans, líkt og flestir eru reiðubúnir til. Það er nú líka þannig að við Íslendingar erum okkar eigin gæfu smiðir og slíkt er miklu auðveldara innan EES-samstarfsins en sem aðildarríki að Evrópusambandinu. Menn þurfa að átta sig á því.
Tillagan sem við höfum fjallað um hér síðustu daga er í skötulíki. Hún er illa unnin, hún var ekki á þingmálaskrá, hún var ekki sett í samráðsgátt. Hún hefur verið keyrð hér út úr nefnd og er nú verið að keyra hana í gegnum seinni umræðu þingsins. Vinnubrögðin eru ótraustvekjandi og það er enn byggt á hræðsluáróðri, útúrsnúningum og falsfréttum, sérstaklega upp á síðkastið og nú í erlendum fjölmiðlum. Þetta er miður. Þingsályktunartillagan og greinargerðin með henni er öll til þess fallin að draga taum aðildarsinna. Hún gerir út af hræðslu; hálfkveðnar vísur og blekkingar sumpart. Hún undirstrikar að fylgismenn tillögunnar, ég er þá sérstaklega að vísa til Viðreisnar, treysta ekki þjóðinni. Þeir treysta ekki þjóðinni til að meta hagsmuni sína út frá staðreyndum, samningsmarkmiðum, og er því reynt að draga upp einhliða mynd. Það eru heldur engar rauðar línur neins staðar. Það að þjóðin eigi að ráða er göfugt og flestir eru sammála því. En þá (Forseti hringir.) þarf að hafa kjark til að leggja sannar og réttar upplýsingar fyrir þjóðina svo hún geti byggt afstöðu sína á gögnum en ekki frösum og hræðsluáróðri Viðreisnar.