157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:11]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M):

Frú forseti. Nú ætla ég að leitast við að klára að fara yfir nefndarálit 2. minni hluta utanríkismálanefndar og snúa mér næst að umræðu um Evrópusambandið sjálft sem slíkt og í framhaldi af því áhrif hugsanlegrar aðildar Íslands að því sambandi. Ég var að rekja hversu erfitt hefur reynst að fá formleg gögn í málinu en jafnvel þegar þau hafa birst, oft jafnvel í fjölmiðlum fremur en þau hafi verið lögð fyrir nefndina sérstaklega, þá er leitast við að líta fram hjá þeim, þar með talið formlegri afstöðu Evrópusambandsins sjálfs til þeirra viðræðna sem nú er leitast við að líka við. Á móti er reynt að gera sem allra mest úr almennu kurteisishjali embættismanna hjá Evrópusambandinu eða stjórnmálamanna í Evrópuríkjum. Í hvert skipti sem slíkur maður næst í viðtal og segir eitthvað tiltölulega jákvætt um Ísland og hugsanlegt aðildarferli þá er það dregið fram, þá er því lyft sem staðfestingu þess að það sé nú aldeilis hægt að semja við Evrópusambandið og það langi stórkostlega að fá Ísland inn. Ég efast ekkert um að embættismenn í Brussel vildu gjarnan fá Ísland inn í Evrópusambandið til að taka þátt í að borga reikningana og sýna að áhugi á Evrópusambandinu sé ekki fullkomlega fyrir bí en öll þessi viðtöl sem lyft er sem röksemdafærslu fyrir möguleikum Íslands í viðræðum við Evrópusambandið bera þess merki að þar er talað óljóst. Svo eru orðin túlkuð upp á nýtt. Þetta eru setningar á borð við: Auðvitað getum við átt gott samtal við Ísland, og þetta var mikið notað, frú forseti: Hver aðildarsamningur er ólíkur öðrum. Þetta var túlkað sem svakalegar fréttir: Heyrðu, við getum fengið aðildarsamning sem er ólíkur öllum öðrum, undanþágur væntanlega í röðum. En hvað þýðir þessi fullyrðing? Hún þýðir einfaldlega, eins og síðar var útskýrt, að umsóknarríkin eiga eftir að uppfylla mismunandi kröfur en öll þurfa þau að uppfylla sömu kröfurnar. Þess vegna eru aðildarsamningar ólíkir. Aðildarríkin þurfa að gera mismikið til þess að Evrópusambandið veiti stimpilinn og segi: Já, nú eruð þið búnir að sýna okkur að þið ætlið að uppfylla allar okkar kröfur.

Ég nefni þetta bara sem dæmi um það hvernig umræðan hefur viljandi verið afvegaleidd af hálfu stuðningsmanna þessa máls. Það má varla reka hljóðnema framan í embættismann hjá Evrópusambandinu eða eftir atvikum einhvern ráðherra í evrópsku landi án þess að orð viðkomandi séu túlkuð af stuðningsmönnum þessa máls sem staðfesting á því að Ísland fái algjöra sérmeðferð gagnvart Evrópusambandinu og það sé ekkert að marka formlegu gögnin, afstöðu Evrópusambandsins eins og henni er lýst gagnvart Íslandi, eins og henni er lýst almennt. Það er aukaatriði en túlkun okkar á því sem einhver embættismaður á göngunum í húsakynnum Evrópusambandsins í Brussel sagði, þar er hin raunverulega afstaða þótt hún sé um leið endurtúlkuð eins og ég gat um.

Að lokum, frú forseti, varðandi starf nefndarinnar þá hefur það leitt í ljós það sem í raun blasti við frá upphafi, að þetta mál snýst af hálfu meiri hlutans ekki um innihaldið, snýst ekki um staðreyndir, það snýst sannarlega ekki um að veita upplýsingar um hvað felist í aðlögunarferli að Evrópusambandinu. Starf nefndarinnar, eins og öll umræða hæstv. ráðherra og hv. þingmanna meiri hlutans hér um málið, hefur ýmist snúist um að halda upplýsingum frá, koma í veg fyrir birtingu þeirra eða að endurtúlka hlutina með þeim hætti sem ég lýsti hérna áðan. Allt hefur þetta snúist um að hraða málinu í gegn eins mikið og kostur er, sama hvað kemur í ljós.

Frú forseti. Nú ætla ég að snúa mér að því að ræða eðli Evrópusambandsins og bið þess vegna um að verða settur aftur á mælendaskrá.