þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Í ljósi þess hvernig þessi umræða hefur þróast hingað til og hvaða svör hafa fengist, eða öllu heldur ekki fengist, við spurningum og ekki síst eftir orðaskipti hv. þm. Sigríðar Á. Andersen hér áðan við hæstv. atvinnuvegaráðherra þar sem kom fram í svari hæstv. ráðherra við tiltölulega einfaldri spurningu þingmannsins að það væri stefnt að meginforræði yfir sjávarauðlindinni — Í ljósi þessara ummæla og margs annars sem komið hefur fram í þessari umræðu verðum við að halda áfram að spyrja, frú forseti: Hver eru markmiðin? Eru þau 100% varanlegar undanþágur frá stofnsáttmálanum? Algjört lykilorð í þessari spurningu er stofnsáttmáli. Eru það varanlegar 100% undanþágur frá stofnsáttmálanum, stofnsáttmála Evrópusambandsins, þar af leiðandi samþykktar af öllum aðildarríkjunum hvað varðar til að mynda íslenskan landbúnað og rekstrarumhverfi hans, hvað varðar eignarhald á Landsvirkjun, hvað varðar orkuauðlindir þjóðarinnar? Er 100% krafa um varanlega undanþágu frá stofnsáttmálanum hvað varðar þessa þætti, frú forseti, eða til að mynda auðlindir hafsins? Er það markmiðið, 100% varanlegar undanþágur frá stofnsáttmálanum hvað varðar auðlindir hafsins? Það hefur ekki enn tekist að draga fram svör við þessum spurningum eða til að mynda varðandi eignarhald á íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum. Það hefur ekki tekist að draga fram markmiðin hvað það varðar heldur. Orkulöggjöf Evrópusambandsins. Við fáum ekki heldur svar við því hvert markmiðið er þar. Það hlýtur að vera: 100% varanlegar undanþágur frá stofnsáttmálanum. Eða losunarheimildirnar sem eru mjög svo íþyngjandi, svokallaðar ETS. Það hlýtur að vera markmið þeirra sem ætla sér að fara í samningaviðræður eða aðlögunarviðræður við Evrópusambandið að fá 100% varanlegar undanþágur frá stofnsáttmálanum hvað það varðar. Þá eru ótaldar allar þær fjölmörgu samkeppnishamlandi reglur sem Evrópusambandið hefur verið að setja á sjálft sig á undanförnum árum og áratugum. Er það líka markmiðið? Það hlýtur að vera markmiðið að fá 100% varanlegar undanþágur frá stofnsáttmála Evrópusambandsins hvað það varðar.
Það er eðlilegt, frú forseti, að ítreka þessar spurningar, sem meira og minna eru allar búnar að koma fram, á þeirri forsendu einni að svörin fást ekki. Ég vitnaði hér áðan til samskipta hv. þm. Sigríðar Á. Andersen við hæstv. atvinnuvegaráðherra þar sem hv. þingmaður lagði fram mjög einfalda og skýra spurningu sem hæstv. ráðherra treysti sér ekki til að svara, vék sér undan því með orðalaginu að auðvitað væri stefnt að meginforræði — meginforræði — yfir sjávarauðlindinni. Slíkur hefur flóttinn verið, frú forseti, í þessari umræðu við mjög eðlilegum og sanngjörnum spurningum sem þjóðin hlýtur að eiga rétt á að fá að vita svar við. Þær eru því fram komnar hér einu sinni enn, settar saman í mjög stuttan texta. Ég endurtek, frú forseti, hér í lokin að ég er ekki að spyrja um einhverjar sérlausnir eða tímabundna aðlögun eða eitthvað slíkt. Ég er að spyrja um varanlegar undanþágur frá stofnsáttmála Evrópusambandsins.