157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:42]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég ætla að fá að grípa boltann eða grípa þráðinn þar sem honum sleppti í ræðu hæstv. utanríkisráðherra. Hún nefnir það og leggur áherslu á það að þessi þjóðaratkvæðagreiðsla lúti að því að almenningur fái upplýsingar sem þurfi til að meta hversu vænlegt væri að ganga inn í Evrópusambandið. Til þess að fá þessar upplýsingar þarf auðvitað að spyrja spurninga og það geta verið alls kyns spurningar. Menn þurfa að hafa samningsmarkmið til að fá þessar upplýsingar. Þess vegna spyr ég: Um hvað ætlar utanríkisráðherra að spyrja í þessum aðildarviðræðum? Um hvað? Á almenningur ekki rétt á því að vita það fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um hvað verður spurt, m.a. hvort spurt verði um það hvort Ísland geti gengið í Evrópusambandið með 100% fullu og varanlegu forræði á öllum auðlindum Íslands og stjórn á þeim auðlindum?