157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:43]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Það skiptir svo miklu máli að við höfum okkar samningsmarkmið, m.a. í ríflega 50 blaðsíðna áliti nefndarinnar. Þar kemur mjög skýrt fram hvað um er að ræða. Við Íslendingar munum að sjálfsögðu, eins og aðrar þjóðir sem hafa treyst sér til að semja við Evrópusambandið, setja fram okkar ýtrustu kröfur. Mér finnst ekki að við eigum að koma hér fram eins og stundum að það sé, og ég vona að ég sé ekki að móðga neinn, að það sé einhver minnimáttarkennd þegar við setjumst við samningaborðið. Staða okkar Íslendinga er sterk. Hún getur orðið enn sterkari í samfélagi líkt þenkjandi þjóða sem standa vörð um þau grundvallarprinsipp sem okkur Íslendingum eru kær. Það er alveg ljóst að samningsmarkmiðin liggja fyrir eftir ítarlega og mikla vinnu nefndarinnar og þingsins, svo það sé alveg skýrt, og við munum setja fram okkar ýtrustu kröfur.

Ég ítreka það líka að ég mun ekki skrifa undir samning sem er ekki til hagsbóta fyrir Ísland. Þetta er alveg skýrt og ég er ekkert feimin við að segja það. En mér finnst ábyrgðarhluti af okkur þingmönnum að leyfa ekki þjóðinni að vita meira. (Forseti hringir.) Við eigum ekki að segja nákvæmlega hvað muni standa í samningnum af því að við vitum það ekki. Við þurfum að tala og semja fyrir Íslands hönd. (Forseti hringir.) Við treystum okkur til að gera það svo þjóðin síðan á endanum fái að ráða.

(Forseti (BHar): Forseti minnir á að eingöngu ein mínúta er til umráða í þessum andsvörum.)