þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Það kemur nefnilega ekki fram í nefndaráliti meiri hlutans að það verði óskað eftir fullu og óskoruðu forræði á stjórn fiskveiða og öllum auðlindum hafsins. Þess vegna spyr ég aftur og almennt líka: Hvernig ætla stjórnvöld og hæstv. ráðherra að haga orðum sínum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu? Með hvaða hætti ætlar hún að taka þátt í þeirri umræðu sem mun eiga sér stað? Verður það bara gert með þessum upphrópunum sem hér voru viðhafðar um lægri vexti og lægri verðbólgu í Evrópusambandslöndunum án þess að nefna það einu orði að í þeim Evrópusambandslöndum sem við helst berum okkur saman við væru margir á Íslandi sem ekki fengju húsnæðislán? Þeir myndu ekki standast kröfur til að fá húsnæðislán. Land eins og Spánn er núna í aðgerð til að hjálpa fólki, fyrstu kaupendum, að kaupa fasteignir. Hvaða fólk er það? Fólk yngra en 41 árs. Það er staðan á Spáni þar sem venjulegt fólk, (Forseti hringir.) harðduglegt, fær ekki einu sinni lán fyrir íbúðarkaupum. Hvernig ætlar hæstv. utanríkisráðherra að haga málflutningi sínum í sumar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar?