þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Þetta eru ákveðin tímamót. Við erum að fara inn í ótrúlegt ferli sem við erum að veita íslensku þjóðinni ákveðin tækifæri til að meta það hvort hún vilji sjá aukna valkosti og samning sem við getum fengið við Evrópusambandið. Við eigum ekki að móta hér eitthvert fliss- og hræðslubandalag þegar við tölum um þessi mál. Við erum að tala um það að skapa valkosti og tækifæri fyrir ungt fólk í framtíðinni. Það er talað hér um hina og þessa hluti. Af hverju er aldrei talað til að mynda um Norðurlöndin eins og t.d. Færeyjar, sem borga miklu minni vexti af sínum húsnæðislánum, þar sem ríkissjóður borgar miklu minni vexti og þarf ekki að nota eins og við 30–40 milljarða í að halda uppi gjaldeyrisvaraforða og nota þá fjármuni frekar í að bora göng og byggja upp heilbrigðiskerfið. Það er þetta sem ég vil bara að þjóðin fái að meta. Við eigum ekki að vera í þessu fliss- og hræðslubandalagi hér. Við eigum að halda áfram og standa keik því þetta er mjög mikilvægt. Þetta er merkilegt mál og við eigum að standa sameinuð í því að tryggja þessi tækifæri til framtíðar fyrir okkur öll, ekki síst börnin okkar.