þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna og býð hana velkomna í umræðuna á lokamínútunum. Ég verð að segja að það veldur mér miklum áhyggjum að utanríkisráðherra Íslands tali um Ísland eins og hæstv. utanríkisráðherra gerir. Því miður er það svo að hæstv. ráðherra dreifir falsfréttum um Ísland og Evrópusambandið. Ég ætla að gefa hæstv. ráðherra tækifæri til að svara því sem hún gerði ekki á opnum fundi um hvort ESB-rétturinn muni gilda á Íslandi. Það þýðir einfaldlega að það sem kemur frá Evrópusambandinu gildir, sama hvaða lög við samþykkjum hér á Alþingi Íslendinga. Ef þau eru ekki í samræmi við ESB-réttinn þá þurfum við að breyta þeim. Ef gömlu lögin sem eru til staðar eru ekki í samræmi við ESB-réttinn þá þurfum við að breyta þeim. Ég vil gefa hæstv. ráðherra tækifæri til að svara þessu.
Sömuleiðis vil ég gefa hæstv. ráðherra tækifæri til að svara því hvort við förum ekki í aðlögun þegar við förum í aðildarviðræðurnar (Forseti hringir.) og hvort við verðum ekki aðilar að sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni sem hv. þm. Pawel Bartoszek (Forseti hringir.) hefur viðurkennt að verði niðurstaðan ef við sækjum um aðild að Evrópusambandinu og samþykkjum að ganga inn.