þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Það er alltaf verið að reyna að draga fram, finnst mér, af því að — ég veit að það fer í taugarnar á hv. þingmanni þegar ég segi það — mér finnst þetta svo merkilegt mál. Við erum að skapa hér tækifæri fyrir fólk til þess að ákveða sína eigin framtíð með auknum og fleiri valkostum til lengri tíma og tryggja sitt efnahagslega öryggi, ekki síst, en líka að tryggja yfirráð og forráð yfir okkar eigin auðlindum. Það hefur ekkert ríki þennan styrkleika í sjávarútvegsmálum eins og Ísland af því að við deilum þeirri hugsjón að við viljum standa vörð um forræði okkar Íslendinga. Það hefur ekkert ríki innan Evrópusambandsins með þvílíka vigt og þvílíkan þunga og þvílíka þekkingu sótt um aðild að Evrópusambandinu eins og Ísland. Það er alveg skýrt sem kom fram hjá fiskveiðikommissarnum sem var í heimsókn hér um daginn að það er eðlilega tekið tillit til þess umhverfis sem viðkomandi þjóðir eru í. Af hverju eigum við ekki að láta á það reyna? Af hverju eigum við að hræða þjóðina frá því að fá samning? Við munum skipa sterkustu samninganefnd sem við getum, skipa einstaklinga sem hafa einmitt þekkingu, færni og innsæi inn í m.a. sjávarútveginn í slíka nefnd til þess að tryggja okkar hagsmuni.
Aðlögun — það er ekki (Forseti hringir.) um aðlögun að ræða. Við sjáum það m.a. hjá Norðmönnum. Það var ekkert sem var óafturkræft eftir tvær þjóðaratkvæðagreiðslur sem áttu sér stað í Noregi.