þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Þetta er sorglegt. Hæstv. ráðherra ætlar að reyna að fara í gegnum þetta mál og komast fram til 29. ágúst og segja þjóðinni ekki satt um hvað felst í því að vera í Evrópusambandinu. Þetta er grafalvarlegt mál. Og talandi um falsfréttir og áhyggjur af útlendingum: Við Íslendingar þurfum að hafa áhyggjur af hæstv. utanríkisráðherra og ríkisstjórninni þegar kemur að því að koma með rangar upplýsingar. Reyndar er það þannig, virðulegur forseti, að ég held hérna á rammasamningi milli ríkisstjórnar Íslands og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um aðlögun. Ég held á honum. Það var allt annað umhverfi sem Noregur fór í. Ég vek bara athygli á því að hæstv. ráðherra svaraði ekki spurningum hv. þm. Sigríðar Andersen sem voru mjög skýrar. Hún svarar ekki því sem allir vita, að ESB-rétturinn gildir. Hún ætlar ekki að upplýsa þjóðina um það. Hún ætlar ekki að upplýsa þjóðina um það að við förum í aðlögun. Hún ætlar ekki að upplýsa þjóðina um það, þó að hv. formaður utanríkismálanefndar hafi gert það,(Forseti hringir.) að við verðum aðilar að sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni.
Virðulegi forseti. Þetta er grafalvarlegt mál. Ég ætla ekki að spyrja hæstv. ráðherra að neinu. Það er fullkomlega tilgangslaust. Ég veit (Forseti hringir.) að það er alveg sama hver spurningin er, það kemur bara eitthvert hjal og slagorðasúpa. En það á að halda upplýsingum frá almenningi.