þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Það er algjörlega rangt. Það er algjörlega rangt og ég vísa þessu til föðurhúsanna að það eigi að halda upplýsingum frá almenningi. Það er kolrangt. Mér er til efs að það séu einhver heilindi hjá fólki sem kemur hingað upp í þennan ræðustól, þennan heilaga stól, og vænir fólk um að það sé verið að blekkja þjóðina. Af hverju er verið að fara þá leið? Bara alls ekki. Við erum sjálfstæð, við erum fullvalda þjóð, alveg eins og aðrar þjóðir innan Evrópusambandsins. Hvaða hræðsla er í því að þora ekki, vera ekki með kassann út og fara í samningaviðræður, m.a. um yfirráð yfir okkar fiskimiðum? Ég vil m.a. benda á það þegar Bretar fóru út úr Evrópusambandinu. Var þar eitthvað til trafala varðandi olíuauðlindirnar undan Skotlandi? Nei, að sjálfsögðu ekki. Eru Hollendingar ekki með yfirráð yfir sínum olíuauðlindum? Að sjálfsögðu er það þannig. Af hverju er alltaf verið að reyna að gera vatnið, sem er tiltölulega tært og skírt, gruggugt? (Gripið fram í.) Af hverju alltaf er verið að reyna að gera það gruggugt? (Gripið fram í: … umráð yfir fiski…) Við munum setja fram okkar ýtrustu kröfur og við verðum með okkar færasta fólk sem hefur bæði þekkingu, reynslu og innsæi innan úr sjávarútveginum í þeim samningaviðræðum.(Gripið fram í.)