þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka spurningarnar. En ég velti fyrir mér Króatíu: Af hverju fékk Króatía ekki varanlegar undanþágur? Af hverju ekki? Af hverju var ekki seinni hluti setningarinnar látinn fylgja með? Af því að Króatía sóttist ekki eftir varanlegum undanþágum. Króatía sóttist ekki eftir varanlegum undanþágum þannig að þeir fengu engar. Ég minntist á það í ræðu minni áðan að Danir fóru í þjóðaratkvæðagreiðslu um að aflétta þeim fyrirvara sem þeir höfðu á varnar- og öryggiskafla Evrópusambandsins. Af hverju fóru þeir í þjóðaratkvæðagreiðslu, virðulegi forseti? Af því að þeir sömdu um að falla ekki undir þennan kafla og til að aflétta þessum fyrirvara þá fóru Danir í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég veit ekki betur en að Danir séu mjög sjálfstæð og fullvalda þjóð og þetta undirstrikar það nákvæmlega. Þetta undirstrikar það vald og þann sjálfsákvörðunarrétt sem þjóðir hafa, fyrir utan þann mikla stuðning — ég vona að hv. þingmaður taki undir með mér hvað það var frábært að sjá stuðning Evrópuríkja þegar vegið var m.a. að sjálfsákvörðunarrétti vina okkar á Grænlandi.