þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Er ég að skilja hæstv. ráðherra rétt að hann muni ekki halda því fram að við séum að fá undanþágur ef þær eru bara tímabundnar? Þegar við kíkjum í pakkann, eins og hún segir, eða sjáum samning, munum við geta treyst því að hæstv. ráðherra muni ekki tala um undanþágur ef þær eru ekki varanlegar? Þetta er mjög mikilvægt. Ég vil líka benda hæstv. ráðherra á það að 40% íbúa Evrópusambandsins á aldrinum 35–64 ára segjast eiga í verulegum vandræðum með að ná endum saman og 25% eiga engan sparnað. Hefur hæstv. ráðherra ekki áhyggjur af þessu þegar hún talar um ungu kynslóðina? Og hér var látið í veðri vaka að uppgjörsmynt stórra fyrirtækja skipti sköpum fyrir stóru fyrirtækin varðandi fjármögnun og vaxtakjör. Það er auðvitað ekki svo. Ef svo væri þá ættu þessi fyrirtæki frekar að gera upp í svissneskum frönkum. Veit hæstv. ráðherra ekki hvernig þetta virkar eða er þetta bara hluti af blekkingunni?