þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég vil kannski byrja á því að þakka hv. þingmanni sérstaklega fyrir að draga fram í spurningu sinni hvað hin ýmsu lönd, mismunandi lönd innan Evrópusambandsins eru ólík. Sum eru með X háa prósentu á virðisaukaskatti, önnur eru með núll. Þetta sýnir að það eru sjálfstæð fullvalda ríki innan Evrópusambandsins og þau hafa eðlilega svigrúm til að vega og meta hvernig þeirra málum er háttað.
Varðandi 100 milljarða. Þetta eru bara reikningar sem hafa verið gagnrýndir af hagfræðingum um það að við erum með ríflega 3.000 milljarða í skuldir heimilanna hér á Íslandi. Ef við lækkum skuldir heimilanna sem nemur 1–3%, hugsanlega 4%, eins og vaxtamunurinn er á milli Íslands og evrunnar, þá þýðir þetta já, 100 milljarða árlega í sparnað fyrir íslenskar fjölskyldur. Mér finnst skipta máli að við reynum einmitt að skoða þær leiðir til þess að minnka þá vaxtabyrði sem íslenskar fjölskyldur standa og þurfa að standa undir, (Forseti hringir.) m.a. út af því að við erum með þennan örgjaldmiðil.