157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[13:04]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta utanrmn. (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ráðherrann svaraði auðvitað engu um það af hverju það væri verðbólga í evrulöndum sem er sambærileg eða talsvert hærri mæld á samræmdan mælikvarða eða af hverju verðbólgan væri allt upp í 9% í Evrópusambandslöndum, svaraði engu. Hún svaraði heldur engu um það af hverju ríkisstjórnin tekur ekki á því að lækka matvælaverð og lækka verðbólguna hérna í landinu heldur bara hleypur undan í flæmingi.

Ég ætla að gera aðra tilraun, miklu einfaldari. Aðildarsinnar, og þar með ráðherrann, segja að það sé mikilvægt að hafa sæti við borðið, sex sæti af 750, og mun væntanlega fara fjölgandi með fleiri aðildarríkjum, hugsanlega einn kommissar af 28, hugsanlega ekki, eða Evrópusambandið bætir við tíu, þá verða þeir varla 40, kommissararnir, þannig að það er hæpið. Hve mörg sæti eru það sem Ísland missir í alþjóðastofnunum, alþjóðasamstarfi sem Evrópusambandið mun taka yfir fyrir hönd Íslands, sem er með sex þingmenn af 750 á Evrópuþinginu?