157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[13:05]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Forseti. Það var verið að tala um verðbólgu, m.a. í Suður-Evrópu og Suðaustur-Evrópu, og ég vil fara stuttlega yfir það. Þetta eru þau ríki sem verða ekki síst fyrir áhrifum vegna stríðsins í Úkraínu en líka vegna lokunar við Hormússundið. Við skulum bara fara yfir þetta. Stýrivextir og verðbólga, nýjustu mælingar: Ísland 7,75% en evrusvæðið er 2%, Noregur 4,25%, í Svíþjóð 1,75% og í Danmörku 1,6%. Verðbólgan í Danmörku er 1,4%, verðbólgan í Svíþjóð 0,8%, í Noregi 3,4%, á evrusvæðinu 3%. Við skulum bara hafa hlutina á hreinu og það er nákvæmlega þetta sem skiptir máli.

Ég heyri alveg hvað hv. þingmaður er að fara og ég ætla ekki að segja að ég undrist þetta. Ég fór m.a. yfir þær þingræður sem voru haldnar á sínum tíma varðandi EES-samninginn og þetta eru nákvæmlega sömu röksemdafærslur sem við heyrum núna og voru settar fram á sínum tíma. Í dag er verið að vara við nákvæmlega því sama og varað var við á þeim tíma og ekkert af því raungerðist. Það raungerðist ekkert af þeim fyrirvörum og (Forseti hringir.) óttablöndnu skoðunum sem ítrekað voru settar fram í þingræðum. Þvert á móti styrkti Ísland sig, styrkti fullveldi sitt, (Forseti hringir.) lífsgæði jukust og ekki síst varð samstarf okkar við aðrar þjóðir dýrmætara.