þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Loksins þegar hæstv. ráðherra mætti til umræðunnar svaraði hún engri spurningu, ekki einni. Þessi hæstv. utanríkisráðherra íslensku þjóðarinnar er ekki með kassann úti þegar hún er að lýsa íslenskri þjóð. Þeir sem ekki þekkja til og hlusta á ræðu hæstv. ráðherra gætu haldið að hér væri allt á vonarvöl og við værum verst stödd af öllum í Evrópu. Þetta er áhyggjuefni. En það er líka áhyggjuefni að falsfréttirnar og upplýsingaóreiðan koma frá ríkisstjórninni. Ríkisstjórnin ætlar sér að hafa litla umræðu um þetta mál, halda upplýsingum frá almenningi, grundvallarupplýsingum og auðvitað öðrum líka, fara í kosningabaráttu þegar fólk er að njóta íslenska sumarsins en ekki er hefð fyrir því að við stöndum í kosningabaráttu eða höldum fjöldafundi þá. Og rökin eru þau að það sé allt svo hræðilegt á Íslandi.
Virðulegi forseti. Ég minni á það að þessi ríkisstjórn var kosin á þeim forsendum að hún væri með plan. Hún var með sleggjuna og ætlaði að taka niður verðbólguna og vextina. Maður veltir því fyrir sér, vegna þess að allir sérfræðingar sem hafa komið fyrir fjárlaganefnd hafa gagnrýnt efnahagsstjórn núverandi ríkisstjórnar, hvort það sé virkilega þannig að menn ætli sér að reyna að hafa ástandið eins slæmt og mögulegt er til að fólk segi: Heyrðu, þetta er vonlaust. Við þurfum að fara eitthvað annað. Og það að bera saman EES og Evrópusambandið er ekki bara villandi, það er alveg fráleitt að leggja það fram að það sé eins.
Ég ætla að vekja athygli á því hvaða spurningum hæstv. ráðherra svaraði ekki. Hún gat ekki sagt frá því, gat ekki staðfest það, að ESB-rétturinn gildi á Íslandi. Nú er til mikið af fræðimönnum sem láta til sín taka og tjá sig um þessi mál. Ég bíð spenntur eftir að þeir komi og leiðrétti hæstv. ráðherra. Ég bíð spenntur eftir því. Ef þeir fræðimenn sem hafa tjáð sig um þessi mál ætla að vera trúverðugir hljóta þeir að benda á hið augljósa, að ESB-rétturinn gildir sjálfkrafa. Það þýðir að við getum aldrei samið lög sem eru í andstöðu við lög og reglugerðir Evrópusambandsins og það þýðir að við þurfum að breyta þeim lögum sem núna eru í andstöðu við lög Evrópusambandsins. Hæstv. ráðherra segir í öðru orðinu að hún vilji að upplýsingar komi til landsmanna en ætlar ekki að segja frá þessu þráspurð á opnum fundum, hér í þingsal; hún segir aldrei frá þessu.
En bara sem dæmi: Hvaða áhrif hefði það haft á undanförnum árum ef þetta hefði verið svona? Við fórum í harða deilu hér um Icesave. Ef við hefðum tapað henni hefði það haft gríðarlega erfiðar afleiðingar fyrir íslenska þjóð. En af því að við vorum ekki í Evrópusambandinu þá unnum við það mál. Ef við hefðum verið í Evrópusambandinu hefðum við bara þurft að fylgja ESB-réttinum um ríkisábyrgð á innstæðum. Reyndar er það þannig að við höfum ekki tekið það upp í EES-réttinn, ríkisábyrgð á innstæður, og þekki ég það ágætlega af því að ég neitaði að gera það. Ef við förum inn þá verður sjálfkrafa ríkisábyrgð á innstæðum og ef einhver ætlar að reyna að halda því fram að það sé hagur íslensku þjóðarinnar þá gangi viðkomandi vel.
Hæstv. ráðherra talaði um að það væri ekki aðlögun. Ég vísaði til þess að ég er hér með rammasamning milli ríkisstjórnarinnar þáverandi, sem hlýtur þá að vera í gildi eins og umsóknin, og framkvæmdastjórnar ESB. Hann gengur út á allra handa skattfrelsi fyrir ESB-fólk sem hingað kemur að vinna að þessu, virðisaukaskattsfrelsi á öllu milli himins og jarðar, sem verður gert út af aðlöguninni, og sömuleiðis tekjuskattsfrelsi fyrir þá embættismenn ESB sem þyrftu að vinna hér á landi. Því að undir stjórn og forystu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins þá var farið í aðlögun. Hæstv. ráðherra vill ekki segja frá þessu. Og hæstv. ráðherra treystir sér ekki til að segja að við verðum aðilar að sameiginlegri sjávarútvegsstefnu. Auðvitað verðum við aðilar að öllum þessum sameiginlegu stefnum. Hvað felst í því? Núna stýrum við þessu hundrað prósent. Hv. þm. Sigríður Andersen spurði: Bíddu, er ekki á hreinu að góður samningur þýðir að við erum hundrað prósent áfram með íslenskan sjávarútveg? Hæstv. ráðherra svaraði því ekki. Hæstv. ráðherra svaraði því ekki eins og hv. þm. Pawel Bartoszek hefur þó gert; hann hefur sagt: Jú, við verðum aðilar að sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni. Hvað þýðir það? Það þýðir að sjávarútvegsstefnunni er stýrt frá Brussel og það sem íslensk stjórnvöld ætla að gera, að ég held, er að reyna að fá eitthvað til baka, ekki fara með allt til Brussel, kannski 80–90%. Ef við fengjum það þá fengjum við meira en nokkrir aðrir og gæti orðið snúið að sannfæra þær þjóðir sem hafa þurft að afhenda allan sinn sjávarútveg til Brussel um sanngirnina í því að við fengjum 10 eða 20% af sjávarútveginum, sem við vorum í mörg hundruð ár að fá til baka í okkar hendur.
En það er ekki bara það, virðulegi forseti. Við fáum ekki einu sinni að ráða því hvaða dýr við veiðum. Við myndum fá að veiða heiðlóu, spóa og hrossagauk. En þær fuglategundir sem við erum vön að veiða með sjálfbærum hætti og eggjatöku og öðru slíku — eða refinn, ég tala nú ekki um hvalinn; það er bara eitthvað sem er bannað í Evrópusambandinu og ef við værum aðilar að Evrópusambandinu myndu þær reglur gilda hér.
Hæstv. ráðherra talaði um fjölþáttaógnirnar. Ég þekki það ágætlega. Við gengum undir minni forystu í fjölþáttaógnasetrið, í ESB-setrið, af því það voru okkar hagsmunir og við þurftum ekkert að vera í ESB til að gera það. — Ég veit ekki hvað á að segja um þetta allt, um það hve ástandið á Íslandi er slæmt. Það er alveg ástæða fyrir því að fólk vill koma til Íslands, m.a. frá Evrópusambandslöndunum. Það er vegna þess að hér er gott að búa og hér eru lífskjör góð þó að verkefnin séu mörg. Stærsta efnahagsógnin núna er ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins.
Virðulegur forseti. Hér talaði hæstv. ráðherra um að pólitíska öryggið myndi aukast og lofar hér eins og stjórnarliðar gera — þeir fara að lofa afslætti á pítsum og matvælum í fullri alvöru, í örvæntingu sinni. Það hefur margoft verið sýnt fram á að þetta stenst ekki. Ef við ætlum að lækka vexti og verðbólgu þá þurfum við að gera það sjálf. Jafnvel þó að við gengjum í Evrópusambandið og myndum þar af leiðandi vilja verða aðilar að evrunni þyrftum við fyrst að laga þetta hjá okkur, annars kæmumst við ekki inn í evruna. Þess vegna tekur það margar þjóðir mjög langan tíma að komast þar inn. Það er ekki þannig að þessi ríkisstjórn hafi komið með upplýsingarnar á borðið og reynt að upplýsa almenning og þing og þjóð um þessi mál, maður hefur þurft að leita að því. Ég skal viðurkenna að ég var búinn að gleyma því af hverju enginn var að tala um evruna síðast þegar sótt var um aðild að Evrópusambandinu. Af hverju var það? Vegna þess að þá var evrukrísa, virðulegi forseti. Nokkur lönd höfðu farið mjög gáleysislega og það var allt í einu orðið vandamál og kostnaður allra hinna. Nú er það þannig að menn töldu að það þyrfti að gera ákveðna hluti til þess að minnka líkur á evrukrísu og þær ganga allar út á það að samþjappa og koma af stað meiri miðstýringu frá Brussel; það væri besta leiðin til að hafa stjórn á þessu. En eftir stendur að þjóðirnar þurfa alltaf að borga út þær sem fara óvarlega eins og gert var í síðustu evrukrísu.
Virðulegur forseti. Hæstv. ráðherra gleymdi að vísa til þess þegar hún lofaði öllu því besta sem hún gat fundið í Evrópusambandinu, eins og stjórnarliðar gera, hún gleymdi að lofa okkur atvinnuleysinu. Ef þú ert með fast gengi og það tekur ekki mið af efnahagsástandi í þínu landi þá koma áföll þannig niður að starfsfólki er sagt upp og þess vegna er atvinnuleysi miklu meira í þessum löndum Evrópusambandsins en við eigum að venjast.
En aðalatriði málsins er þetta: Upplýsingaóreiðan í tengslum við þessa umræðu kemur frá ríkisstjórninni og hæstv. ráðherra og stjórnarliðum. Ef menn ætla að reyna að vera örlítið sjálfum sér samkvæmir þegar þeir tala gegn falsfréttum þá verða þeir að byrja á því að segja satt og rétt frá um Evrópusambandið.