157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[13:17]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Herra forseti. Leyniherbergið var opnað í morgun. Við erum bundin trúnaði yfir því sem þar kemur fram og þjóðin má ekki sjá þetta. En ég er varla bundin trúnaði yfir því sem þar kemur ekki fram. Ég sá ekkert um það að við værum að fara að fá einhverja sérmeðferð, hraðmeðferð, inn í Evrópusambandið. Það stendur ekkert um það af hverju það er talinn raunhæfur möguleiki að Ísland verði komið inn í Evrópusambandið eftir tvö ár ef við segjum já í ágúst, enda sagði Feneyjanefndin á fundi hér að hún teldi það mjög ólíklegt. Það var ekki laust við að maður sæi hversu hissa fulltrúar Feneyjanefndarinnar voru þegar þetta var borið upp, að þessu væri haldið fram hér á Íslandi af hæstv. utanríkisráðherra. Einnig kom ekkert fram um það af hverju Ísland eða hæstv. ráðherrar telji að við séum að fara í ferli sem snúist um að kíkja í einhvern pakka. Það er ekkert um það að Ísland, eitt ríkja, fái verulegar undanþágur sem önnur ríki fá ekki. Það liggur alveg fyrir hvað Evrópusambandið er og ekkert var að finna um það að við værum að fara að fá einhverja sérmeðferð.

Ég reyndi því hér áðan að spyrja hæstv. utanríkisráðherra út í það hvað hún væri að meina þegar verið er að tala um að kíkja í pakkann og sjá samning, hvort það gæti verið að um einhvern misskilning væri að ræða á varanlegum undanþágum og þeim undanþágum sem snúa bara að því hvað við tökum langan tíma í að aðlagast Evrópusambandinu. Eins og í held ég öllu sem ég spurði hæstv. utanríkisráðherra um þá svaraði hún ekki. Ég spurði einnig: Er hægt að treysta því að ef við förum í þessar viðræður og samningur kemst á borðið fyrir þjóðina verði því ekki haldið fram að við séum að fá undanþágur nema ef þær eru varanlegar? Hæstv. utanríkisráðherra svaraði þessu ekki.

Hæstv. utanríkisráðherra, því miður, var hér í hliðarsal að ræða við einhverja aðila og heyrði held ég engar spurningar. Svo kom hún hérna og spurði reyndar úr sal hver spurningin væri. Ég veit ekki alveg hvernig maður á að bregðast við því. En til að mynda þá var hún að tala um tækifæri fyrir ungu kynslóðina. Ég hef bent á það að um 40% þeirra sem búa í Evrópusambandinu og eru á aldrinum 35–64 ára eiga í vandræðum með að ná endum saman. Það voru engin svör við því hvernig hún liti á þau mál. Í raun og veru voru engin svör við neinu sem við spurðum um. Það er óboðlegt að við séum hér að klára umræðu þegar ráðherra forðast að svara lykilspurningum sem hafa verið lagðar fram. Þá verður það kannski bara að enda þannig að þjóðin sjái hvernig í pottinn er búið. Það eru engin svör. Það eru bara útúrsnúningar. Og aftur, meira að segja kom hæstv. ráðherra hér, eins og margir í Viðreisn og reyndar í Samfylkingunni líka, og talaði um að stóru fyrirtækin fengju að gera upp í evrum en ekki þau litlu. Fyrirtæki sem gera upp í evrum hafa tekjur í evrum, í erlendri mynt. Meira að segja almenningur getur fengið lán í erlendri mynt ef hann fær tekjur í erlendri mynt. Það hefur til að mynda ekkert að gera með skattgreiðslur. Ef þú ert með skattalega heimilisfesti á Íslandi þá borgar þú skatta hér. Ef hæstv. ráðherra var að gefa í skyn, eins og ég skildi, að það væru einhverjir möguleikar á öðru vaxtaumhverfi, af hverju ættu þessi fyrirtæki ekki bara að gera upp í Sviss í svissneskum frönkum eða í japönsku jeni? Væri það ekki nær? Þetta nær auðvitað engri átt; þetta eru bara útúrsnúningar sem er hent fram og öll umræðan hefur einkennst af þessu.

Herra forseti. Ég ætla að óska eftir að verða sett aftur á mælendaskrá en ég geri jafnvel ráð fyrir að ég nái í næstu ræðu að koma inn á það helsta sem hefur farið hér fram og ég held að við ættum að hafa í huga í sumar. Að þessu sögðu, þar sem hv. þm. Pawel Bartoszek er kominn í salinn, þá væri alveg rosalega ánægjulegt ef hann gæti komið í andsvar við mig og við gætum tekist aðeins á um og rætt undanþágur versus varanlegar undanþágur.