þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Frá fyrsta degi hefur þessi umræða snúist um traust, að treysta íslensku þjóðinni. Sjálfstæðisflokkurinn treystir þjóðinni og við höfum krafist þess að þjóðin fái skýrar upplýsingar áður en hún er beðin um að veita ríkisstjórninni umboð til að hefja vegferð inn í Evrópusambandið. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið skýr í þessu máli; Ísland á að eiga gott samstarf við Evrópu. Við eigum að rækta viðskipti, auka samstarf, efla menntun og menningu, öryggi og sameiginleg hagsmunamál með Evrópuþjóðum. Það höfum við gert og það eigum við áfram að gera. En það er grundvallarmunur á samstarfi og samruna. EES-samningurinn hefur tryggt íslenskum fyrirtækjum aðgang að hinum innri markaði. Atlantshafsbandalagið og varnarsamstarf við Bandaríkin hafa tryggt öryggi landsins. Þessi stefna hefur reynst Íslandi vel vegna þess að hún hefur byggst á þeirri grundvallarreglu að Ísland tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi sem fullvalda ríki.
Fullveldi gerir okkur kleift að taka ákvarðanir á eigin forsendum. Það tryggir okkur forræði yfir fiskimiðunum, orkunni, landbúnaðinum og þeim verðmætum sem íslensk heimili og fyrirtæki byggja afkomu sína á. Með aðild að Evrópusambandinu færist ákvörðunarvaldið annað. Stundum er sagt að með ESB-aðild fáum við sæti við borðið en við skulum segja hlutina eins og þeir eru; á 720 manna Evrópuþingi fengi Ísland um sex þingmenn. Það er hlutfallslega á við minna en einn þingmann hér á Alþingi Íslendinga. Við höfum haft slíka örflokka á Alþingi og enginn myndi halda því fram að slíkur þingstyrkur réði ferðinni eða hefði nokkur áhrif í stærstu málum þjóðarinnar. Þá falla fiskveiðar okkar undir sameiginlega fiskveiðistefnu Evrópusambandsins. Þá fer Ísland inn í sameiginlega tollastefnu og viðskiptastefnu sambandsins. Þá tökum við ekki lengur sjálfstæðar ákvarðanir um mál sem við höfum barist fyrir að taka alla lýðveldissöguna. Þess vegna verður þjóðin að vita hvað er í húfi.
Ríkisstjórnin hefur reynt að tala um þetta eins og verið sé að kíkja í pakkann, eins og þetta sé bara könnun á því hvað standi til boða. En aðildarviðræður við Evrópusambandið eru spurning um miklu meira. Þær eru vegferð í átt að einni niðurstöðu, aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þá vaknar einföld spurning: Á hvaða forsendum á að fara inn í slíkar viðræður? Við höfum þráspurt ríkisstjórnina um samningsmarkmiðin. Hver eru þau? Hvar liggja rauðu línurnar? Hvað á að verja í sjávarútvegi? Hvað á að verja í orkumálum? Hvað á að verja í landbúnaði? Hvað á að verja í tollastefnu og viðskiptastefnu? Hvað þarf að nást til þess að ríkisstjórnin telji samning ásættanlegan? Við höfum ekki fengið nein skýr svör hér á Alþingi. Samt stóð hæstv. forsætisráðherra hér í dag og sagði að framhaldið myndi ráðast af samningsmarkmiðum. En hvernig á þjóðin að taka upplýsta ákvörðun um vegferð sem á að ráðast af markmiðum sem ríkisstjórnin getur ekki eða vill ekki segja hver eru? Það að halda þjóðinni óupplýstri er ekki merki um að treysta þjóðinni.
Til að bæta gráu ofan á svart hafa skilaboð ríkisstjórnarinnar verið ósamrýmanleg. Hæstv. utanríkisráðherra segir að þjóðin sé að kjósa um það hvort við eigum að klára samning við Evrópusambandið. Meiri hluti utanríkismálanefndar segir hins vegar að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar skuldbindi ekki stjórnvöld til að ljúka samningi og leggja hann fyrir þjóðina. Hæstv. forsætisráðherra segir síðan að þjóðin eigi fyrsta og síðasta orðið en hún muni ekki leggja vonlausan samning fyrir þjóðina en bætir við að samningurinn verði að vera í takt við samningsmarkmið sem þjóðin hefur ekki fengið að sjá með skýrum hætti.
Það er ekki nema von að erlendir fjölmiðlar fjalli um upplýsingaóreiðu hvað varðar þetta mál þegar skilaboð ríkisstjórnarinnar eru út og suður. Ef þjóðin er beðin um að veita umboð til viðræðna verður hún að vita hvað það umboð felur í sér. Er verið að biðja um umboð til að hefja viðræður, er verið að biðja um umboð til að klára samning eða er verið að biðja um umboð til að fara af stað án þess að nokkur viti með vissu hvert ríkisstjórnin ætlar sér?
Virðulegi forseti. Sjálfstæðisflokkurinn óttast ekki samtal við aðrar þjóðir. Við höfum leitt Ísland inn í öflugt alþjóðlegt samstarf og höfum lagt grunn að þeirri utanríkisstefnu sem hefur átt stóran hlut í því að gera Ísland að einu samkeppnishæfasta ríki í heimi. (Forseti hringir.) En við höfnum því að stærstu ákvarðanir um fullveldi Íslands séu settar í búning óljósrar þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem spurningin breytist, svörin breytast, skýringar breytast og samningsmarkmið liggja ekki einu sinni skýr fyrir. (Forseti hringir.) Við viljum ræða Evrópusambandið af alvöru en ákvarðanir um Ísland á að taka á Íslandi. Sjálfstæðisflokkurinn segir áfram já við öflugu samstarfi við Evrópu en við segjum nei við ESB-aðild.