157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[13:28]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M):

Herra forseti. Ég hef lokið umfjöllun minni um nefndarálit 2. minni hluta utanríkismálanefndar og hugðist snúa mér næst að því að ræða Evrópusambandið sjálft, eðli þess kosti og galla, en í millitíðinni birtist hér hæstv. utanríkisráðherra. Það er því ekki hægt annað en að bregðast við því sem kom fram eða skyldi maður segja því sem ekki kom fram í máli hæstv. ráðherra því að innleggið í fyrstu ræðu hæstv. utanríkisráðherra í þessari 2. umræðu um þetta stærsta mál Viðreisnar frá upphafi snerist eingöngu um að hjakka í sama farinu og reyna að villa um fyrir fólki með hvað stæði til. Hæstv. ráðherra svaraði auðvitað ekki frekar en fyrri daginn neinum spurningum sem að hæstv. ráðherra var beint en heldur því enn fram að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu, ólíkt umsóknum alla allra annarra landa og í andstöðu við reglur Evrópusambandsins, í andstöðu við reynslu Íslendinga sjálfra, snúist alls ekki um það hvort Íslendingar vilji ganga í Evrópusambandið; hún snúist bara um að leita tilboða. Sú vinna sem fram hefur farið frá því að málið var kynnt á blaðamannafundi hefur þó leitt það í ljós, sem lá reyndar fyrir áður en hefur aldeilis verið staðfest, að þetta eru ósannindi. Og ég myndi ganga lengra; ég myndi kalla þetta ósvífna, óheiðarlega framsetningu gagnvart almenningi. Því að jafnvel leiðbeiningar Evrópusambandsins sjálfs og fyrirliggjandi forsendur Evrópusambandsins fyrir þeim aðildarviðræðum við Ísland sem enn er reynt að endurlífga staðfesta það með óyggjandi hætti að Íslandi er ætlað að aðlaga sig sambandinu og viðræður byggjast á því að umsóknarríkið Ísland ætli sér að ganga í sambandið og þá gefist tækifæri til að sanna fyrir Evrópusambandinu, þar með talið í framkvæmd, að landið sé tilbúið að laga sig að öllum kröfum þess.

Samt kemur hér hæstv. utanríkisráðherra upp eina ferðina enn og hefur greinilega það lítið álit á íslenskum almenningi að hæstv. ráðherra telur að það sé hægt að blekkja fólk með fullyrðingum sem standast enga skoðun, gerði það ekki fyrir hvað þá eftir þá umræðu sem hefur farið fram og þá gagnaöflun sem hefur reyndar í mörgum tilvikum þurft að toga út með töngum en það hefur hjálpað til að grundvallargögn málsins hafa einnig birst í fjölmiðlum. Þess vegna er fullljóst að það er ekki hægt að samþykkja tillögu ríkisstjórnarinnar á þeim forsendum sem hún er lögð fram af því að hún snýst ekki um að upplýsa almenning. Við höfum aldeilis fengið að sjá það. Það er reynt að takmarka umræðu og upplýsingaöflun sem mest og málið á að fara fram í skjóli sumars en Alþingi getur ekki leyft sér að afgreiða hér mál ráðherra á fölskum forsendum, sérstaklega þegar málið varðar fullveldi og alla framtíð Íslands. Mér þótti reyndar eiginlega allt í ræðu hæstv. ráðherra óviðeigandi en sérstaklega fannst mér svekkjandi að hæstv. ráðherra væri kominn í það öngstræti að hann væri byrjaður að tala Ísland niður og gefa til kynna að þetta væri of erfitt verkefni fyrir okkur, þessa fáu Íslendinga, og í skjóli þess þrifist alls konar óværa hér, í landi sem hefur náð meiri árangri á undanförnum áratugum en nokkurt annað land í heiminum. Hæstv. ráðherra var farinn að hljóma eins og sósíalisti á fjórða áratugnum og að (Forseti hringir.) uppnefna hina ýmsu menn sem — herra forseti. Eins og kom fram í upphafi máls míns þá langar mig að fara að ræða um eðli Evrópusambandsins og bið því um að vera skráður aftur á mælendaskrá.