157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[13:54]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hún hefði betur verið haldin fyrr. Hv. þingmaður gengst við því, sem við vissum sem þekkjum hv. þingmann, að hann er Evrópusinni og ég ber virðingu fyrir því. Þó að hann hafi nú gengið skemur en flestir aðrir þá vilja menn ekki alveg kannast við hvað það felur í sér. Hér áður fyrr þegar hv. þingmaður varð Evrópusinni þá þorðu menn að taka umræðuna, hvort sem þeir voru að tala við einhvern sem var sammála eða ósammála. Ég verð að vísu að segja að það hefur valdið mér vonbrigðum, af því ég hef aðeins komið að störfum utanríkismálanefndar, að utanríkismálanefnd virtist hafa það markmið, eins og kom fram, að halda aðallega áætluninni, en það var ekki verið að vinna úr þessu máli eins og alla jafna er gert í 99% tilfella í nefndarstarfi og ég þekki það nú nokkuð á mínum þingferli að vinna úr málum.

En ég vil spyrja hv. þingmann um nokkra hluti. Í fyrsta lagi, af því að hv. þingmaður viðurkennir, og ég fer hér yfir, að við erum auðvitað að færa völd til ESB og er að færa rök fyrir því að við höfum einhver ítök þar: Finnst hv. þingmanni ekki óþægilegt að hæstv. utanríkisráðherra vilji ekki gangast við því að ESB-rétturinn gildi á Íslandi? Hv. þingmaður veit það jafn vel og ég að það er. Ef við göngum inn í Evrópusambandið þá mun hann gera það sjálfkrafa í langflestum tilfellum. Það er númer eitt. Númer tvö: Ef við förum í Evrópusambandið þá verðum við í tollabandalagi. Núna höfum við hagað tollverndinni þannig, af því við erum með heimskautalandbúnað, hér er dýr launakostnaður, stutt sumur og það er bara dýrt að vera með landbúnað, að við höfum bara miðað þetta við það að reyna að halda lífi í þessum fáu bændum sem eru. (Forseti hringir.) Hefur hv. þingmaður ekki áhyggjur af því að þegar við förum í allt aðra tollastefnu muni það hafa slæm áhrif á íslenskan landbúnað? Vegna þess að auðvitað eru styrkirnir sem við fáum, eins og hv. þingmaður hefur bent á, miklu minni en það sem við greiðum inn? (Forseti hringir.) Og svo númer þrjú: Já, það er kjarabót að lækka vexti. Finnst hv. þingmanni ekki að ríkisstjórnin ætti að vinna að því að lækka vexti og verðbólgu?