157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[13:57]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Að sjálfsögðu ættum við að gera það og við erum að gera það og ég fagna því að við séum að fara að reka hallalaus fjárlög hér í bráð.

Mig langar aðeins að tala um forgangsrétt vegna þess að hv. þingmaður er fær í ákveðinni mælskulist sem felst t.d. í því að hann reynir að fá fram afstöðu til sameiginlegu sjávarútvegsstefnunnar og veiða upp úr fólki eitthvað já og nei svar en skilur þá kannski eftir alla varnagla sem fólk setur. Nú er það t.d. þannig að ég hef alltaf verið skýr um að Ísland eigi að halda, og það er stefna meiri hlutans og kemur fram í álitinu, fullum og varanlegum yfirráðum yfir sjávarútvegsauðlindinni. Það hefur auðvitað verið bent á að ein leið til þess sé sérlausn sem er skrifuð inn í aðildarsáttmála. Síðan er þessi fullyrðing dregin þannig fram að ég sé hlynntur því að ganga einhvern veginn algerlega án skilyrða inn í sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna sem er rétt að árétta að er ekki mín skoðun eða mín afstaða.

Með forgangsréttinn er það kannski dálítið svipað. Í grunninn held ég að það þurfi ekki að vera með einhverjar sérstakar deilur um það. Evrópusambandið og innri markaðurinn stefna að einsleitni í lagasetningu. Við vitum það auðvitað í EES-samningnum líka. Um það snýst svolítið deilan um bókun 35. Þegar Evrópusambandið setur lög og vill að sömu lög gildi á öllu svæðinu þá er markmiðið að lögin séu einsleit. Það hafa auðvitað komið hérna dómar frá einstaka aðildarríkjum, bæði í Þýskalandi og Póllandi, þar sem sett hefur verið svona ákveðið spurningarmerki við þennan skýra fortakslausa forgangsrétt, þessa grunnreglu, þá er það að mínu mati algerlega þannig að það er bara hluti af því að vera í Evrópusambandinu; meginreglan er sú að Evrópurétturinn gildi.

Varðandi tollaverndina þá er það þannig að jú, ég hef áhyggjur og við öll höfum talið tilefni til að rýna stöðu bænda, enda er það þannig að í álitinu er ritað mikið um það efni (Forseti hringir.) og sérstaklega ávörpuð markaðsvernd, hvernig hægt sé að koma henni fyrir, mögulega tímabundinni, til að verja stöðu bænda þegar til ESB-aðildar kemur.