157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[13:59]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það hefur ekkert að gera með einhverja meinta mælskulist mína að ef við förum í sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna þá sé hún sameiginleg. Það geta verið reglur sem henta okkur en hún er sameiginleg. Þannig er það bara. Ég er bara ánægður að hv. þingmaður gengst við forgangsréttinum en ég er mjög ósáttur ef hv. þingmaður, og ég mun fara hér í ræðu á eftir, ætlar að reyna að halda því fram að það sé sambærilegt því sem gerist í EES. Það er ekki. Þó svo að bókun 35 yrði samþykkt er það alltaf þannig að það eru engin lög á Íslandi nema Alþingi Íslendinga samþykki þau lög. Þannig er það. Nú er það þannig t.d. með tilskipunina um innstæðutryggingarnar að við höfum ekki viljað taka hana upp í EES-rétt vegna þess að við ætlum ekki að samþykkja hana í íslensk lög út af þjóðaratkvæðagreiðslu sem hér var þar sem það var skýr þjóðarvilji að það yrði ekki. Þetta gætum við aldrei gert ef við værum innan Evrópusambandsins. (Forseti hringir.) Ég þakka hreinskilnina þegar kemur að íslenskum landbúnaði en tímabundnar undanþágur munu ekki virka. (Forseti hringir.) Þó svo að hlýnun jarðar sé til staðar þá erum við ekki að sjá þær breytingar í umhverfi okkar að við verðum samkeppnishæf við landbúnað sunnar í álfunni.