þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Mig langar að byrja á að þakka hv. þm. Pawel Bartoszek í fyrsta lagi fyrir að taka þátt og í öðru lagi fyrir það að ég upplifi hann alltaf bara reyna að svara heiðarlega. Við vitum að hann vill ganga inn í Evrópusambandið þannig að ég ætla að leyfa mér að spyrja hann spurninga sem ég fékk ekki svar við frá hæstv. ráðherra áðan. Áður en ég kem að spurningunni vil ég taka það fram að við erum auðvitað bara að reyna að tryggja að upplýsingar liggi fyrir og að forsendur fyrir þessum aðildarviðræðum liggi fyrir þannig að almenningur geti tekið upplýsta ákvörðun þegar kemur að þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Það sem hefur verið svolítið mikið talað um er að kíkja í pakkann eða sjá samning, hvernig sem fólk vill orða það. Er ekki rétt að mati hv. þingmanns að við séum ekki að fara að tala um neinar varanlegar undanþágur heldur séum við að fara að tala um undanþágur og samning að því leyti hversu langan tíma það tekur Ísland að aðlagast Evrópusambandinu, svipað og með loftslagsskattana? Þar fengum við bara aðlögunarfrest en við fengum ekki undanþágu að eilífu. Er það ekki samningurinn eða telur hv. þingmaður að við eigum séns, eitt ríkja, að fá fullt af varanlegum undanþágum sem önnur ríki hafa ekki fengið? Með þessari spurningu er ég að reyna að ná utan um hvað það þýðir að segja já í ágúst og hvað það þýðir að segja nei og hvað það þýðir að við séum bara að sjá einhvern samning. Þannig að það er þetta með varanlegar undanþágur versus tímabundnar undanþágur sem mig langaði aðeins að ræða við hv. þingmann.