þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Það er rétt, virðulegur forseti, að undanþágurnar geta verið varanlegar eða tímabundnar. Þegar síðasta stóra stækkunin, stærsta stækkunin í sögu Evrópusambandsins, varð árið 2004 gengu þar inn mjög mörg ríki sem voru þá fyrrum kommúnistaríki sem höfðu gríðarlegan metnað fyrir því að komast inn í Evrópusambandið sem fyrst. Af þeim átta ríkjum sem setja má í þann flokk held ég að ekkert þeirra hafi fengið einhverja varanlega undanþágu, bara svo það sé sagt. Þarna voru ríki sem voru kannski að fá sjö ára undanþágu frá frjálsum kaupum á jörðum og á móti var sjö ára undanþága sem Evrópusambandið fékk á frjálsum fólksflutningum. Svona var þetta svolítið. Malta t.d. var hins vegar ekki fyrrum kommúnistaríki og þeir fengu sannarlega varanlega lausn, sérlausn, á sínum sjávarútvegi sem fólk gerir kannski grín að, að þarna séu bara litlir bátar og 25 mílur, en engu að síður var komið til móts við sértæka hagsmuni Möltu á þessum tíma með því að gera breytingar sem hugnuðust Möltu, sem voru góðar fyrir Möltu. Ég hef ekki getað lesið í skilaboð fulltrúa Evrópusambandsins að undanförnu öðruvísi en svo að það væri sannarlega um eitthvað að semja annað en bara einhver þriggja til fimm ára millitímabil þar sem við fengjum fresti til að aðlaga okkar hluti. Vel að merkja gæti í einhverjum tilfellum líka verið gagn að því fyrir okkur að nýta okkur tímabundna fresti en þegar við lítum á hluti eins og sjávarútveginn eða sérlausnir í landbúnaði held ég að tímabundnar aðlaganir myndu ekki duga til fyrir okkar hagsmuni. En ég bara hafna því og ég held að við — enginn samningamaður með viti, hafandi heyrt yfirlýsingar Evrópusambandsins að undanförnu, myndi ganga til þessara viðræðna og slá að fyrra bragði varanlegar sérlausnir út af borðinu.