157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:07]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka svarið. Þarna er kannski stóri munurinn, það sem okkur greinir á um, vegna þess að ekkert ríki hefur fengið varanlega undanþágu síðustu áratugi og reyndar var það ekki alveg rétt hjá hæstv. utanríkisráðherra áðan að Króatía hefði ekki óskað eftir þeim. En ég fer kannski aðeins betur yfir það í minni ræðu.

Það sem mig langaði að einblína á hér í seinna andsvari er að spyrja hv. þingmann hvort hann hafi ekki áhyggjur af því að Evrópusambandið sé að dragast aftur úr í samkeppni, annars vegar gagnvart Bandaríkjunum og hins vegar gagnvart Asíu, og þá helst Kína, og hvernig hann sjái fyrir sér að Evrópusambandið til framtíðar geti breytt þessu og hvort það sé raunhæft að það gerist eitthvað á næstu árum að þeir dragi úr þessari reglugerðarvæðingu og verði samkeppnishæfir aftur.