157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:09]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta utanrmn. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hv. þingmaður talaði hér um heiðarleika. Mig langar að segja það hv. þingmanni til hróss að hann hefur oft verið mun heiðarlegri en aðrir stjórnarliðar í þessari umræðu um ESB, m.a. sagt það fullum fetum að áratugum saman hafi hann verið hlynntur inngöngu í Evrópusambandið en að hann telji að við eigum ekki að ganga til skilyrtra viðræðna við Evrópusambandið. En hann beinir síðan talinu að völdum aðildarríkja og nefnir þar ráðherraráðið og framkvæmdastjórnina, væntanlega af því að hann áttar sig á því hversu illa það hljómar að við myndum fá sex þingmenn af meira en 700 á Evrópuþinginu. Einn framkvæmdastjóri per aðildarríki eða einn málefnaráðherra hljómar miklu betur. Eða hvað? Er öll sagan sögð þarna? Er þetta heiðarleg framsetning, virðulegi forseti? Hvernig tekur Evrópusambandið almennt ákvarðanir á þessum vettvangi, í ráðherraráðinu og í framkvæmdastjórninni? Myndi Ísland t.d. hafa neitunarvald á þessum vettvangi þegar kemur að öllum hagsmunum Íslands?