þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Nú ætla ég að halda mína síðustu ræðu í þessu máli. Mig langar aðeins að draga saman það sem ég hef verið að koma inn á síðustu tvo daga og ég vil ítreka í byrjun að þessi umræða hefur snúið að því að tryggja að upplýsingar liggi fyrir og forsendur aðildarviðræðnanna, svo sem samningsmarkmið, liggi fyrir þannig að almenningur geti tekið upplýsta ákvörðun í þjóðaratkvæðagreiðslu. Því miður höfum við hins vegar ekki fengið svör að neinu ráði við þessum spurningum og því mun mæða mikið á okkur í sumar að reyna að koma upplýsingum til þjóðarinnar því að ekki getum við treyst ríkisstjórninni.
Ég er búin að fara hér yfir hvernig Evrópusambandið er gjörsamlega búið að regluvæða sig út úr allri samkeppni. Við höfum líka farið yfir hvernig Evrópusambandið er komið í stóra innviðaskuld. Það liggur fyrir að það þarf 750–800 milljarða evra á ári til að ná í skottið á innviðaskuldinni þannig að ef Ísland gengur í Evrópusambandið munum við ekki bara vera að ræða innviðaskuldina hér á Íslandi heldur líka það sem við þurfum að greiða til Evrópusambandsins.
Svo komum við inn á hælisleitendapakkann. Hælisleitendapakki Evrópusambandsins er auðvitað alveg afleitur. Evrópusambandið sjálft er byrjað að sekta lönd sem neita að fylgja hælisleitendapakkanum, lönd sem segja að það komi ekki til greina því að pakkinn sé svo ónýtur. Evrópusambandið sýnir hörku og byrjar að sekta. Þetta er það sem við ættum í vændum ef við færum inn í Evrópusambandið.
Við ræddum hér líka um alþjóðlegan her. Fólk hefur áhyggjur af því. Munum við þurfa að taka þátt í því að beygja okkur undir herskyldu Evrópusambandsins? Eins og staðan er núna er ekki evrópskur her. Hins vegar er nokkuð auðvelt fyrir Evrópusambandið, ef aðstæður breytast, að breyta því. Ætlum við þá að treysta því að við munum segja nei og við munum ekki taka þátt í því og hvernig haldið þið að afleiðingarnar af því yrðu miðað við hvernig Evrópusambandið hagar sér í flestum málum þegar einhver reynir að gera eitthvað annað en Evrópusambandið vill? Ég myndi ekki útiloka að þetta sé eitthvað sem við þurfum að taka ákvörðun um í framtíðinni en vonandi ekki vegna þess að vonandi segjum við nei í ágúst.
Við fórum yfir að það að segja já í ágúst snýst ekki bara um að kíkja í einhvern pakka. Það er ekki svo. Ef þú segir já í ágúst þá ertu að segja: Já, ég vil ganga inn í Evrópusambandið. Þá hefjast samningaviðræður um það hvernig og á hve löngum tíma við ætlum að aðlagast Evrópusambandinu. Það hefur ekkert ríki í áratugi fengið varanlega undanþágu frá Evrópusambandinu þannig að það er ekki hægt að halda öðru fram en að það séu blekkingar að halda því fram að Ísland fari að fá varanlegar undanþágur á hinum og þessum sviðum, enda þurfa öll hin 27 ríki Evrópusambandsins að samþykkja hverja einustu varanlegu undanþágu ef samninganefnd Evrópusambandsins dytti það í hug, þannig að það er augljóslega ekki að fara að gerast. Varanlegar undanþágur hafa ekki verið veittar frá 2004 og það er ekki rétt sem hæstv. utanríkisráðherra hélt fram hér áðan að Króatía hefði ekki óskað eftir varanlegum undanþágum. Króatar óskuðu eftir varanlegum undanþágum í sjávarútvegsmálum en fengu þær ekki. Það endaði þannig að þeir drógu þær til baka vegna þess að þeir sáu að annars myndu samningaviðræðurnar við Evrópusambandið fara í strand.
Hvað haldið þið að Króatía, sem er nýjasta landið, myndi segja ef Ísland ætti allt í einu að fá varanlega undanþágu? Og þó að það séu nokkrar varanlegar undanþágur sem hafa verið veittar þá hefur ekkert ríki fengið varanlega undanþágu frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins.
Við veltum líka fyrir okkur: Af hverju sömdum við svona af okkur í makrílsamningunum? Það var vegna þess að hæstv. utanríkisráðherra hélt ekki betur á spilunum af því að makrílmálin voru okkur erfið síðast og hún vildi klára þau. Ef það er samið svona illa í makrílmálinu eða af því að Evrópusambandið hafði svona mikla hagsmunagæslu fyrir Evrópusambandið og önnur lönd fyrir sig, (Forseti hringir.) hvernig haldið þið að þetta verði þegar Viðreisn vill komast inn í Evrópusambandið?
Ég mun segja nei í ágúst og ég vona að þjóðin öll geri það líka.