þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Það líður nú að lokum þessarar umræðu miðað við boðaða atkvæðagreiðslu. Ég vildi gjarnan í lokin hnykkja á því sem hæstv. ráðherrar og allir þeir þingmenn sem hafa tjáð sig úr röðum meiri hlutans frá því við hófum þessa umræðu, sem eru reyndar ekkert mjög margir, hafa forðast — það er sama hugtakið allan tímann. Það er eitt hugtak sem enginn hefur viljað nota hér úr ríkisstjórninni eða meiri hlutanum og það er orðið stofnsáttmáli.
Herra forseti. Það er ástæða fyrir því. Því að allir þessir orðaleikir um sérlausnir, aðlögunartíma og annað þess háttar eru notaðir til að komast hjá því að nota orðin „varanlegar undanþágur frá stofnsáttmála Evrópusambandsins“. Það er með ráðum gert, herra forseti, því að það eru engin dæmi um það. Á þetta hef ég ítrekað bent. Ég hef líka ítrekað, ásamt fleiri þingmönnum, óskað svara um markmiðin; hvort hæstv. ríkisstjórn, og eftir atvikum hæstv. ráðherrar, vilji segja það hér í ræðustóli að þeir muni krefjast hundrað prósent undanþágu, varanlegri, frá stofnsáttmála Evrópusambandsins hvað varðar landbúnaðinn, orkuauðlindirnar, eignarhald á Landsvirkjun, auðlindir hafsins, íslenskt eignarhald á sjávarútvegsfyrirtækjum, orkulöggjöf ESB, ETS-losunarheimildir, samkeppnishamlandi regluverk ESB o.s.frv.
Herra forseti. Ég lýk máli mínu á því að segja: Enginn þeirra hefur viljað nota orðin „varanlegar undanþágur frá stofnsáttmála Evrópusambandsins“.