þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Með þátttöku minni í stjórnmálum er ég drifinn áfram af þeirri einlægu ósk minni að okkar einstaka og sögulega merkilega þjóð fái áfram að vaxa hér um alla eilífð og dafna. Ég vil að núlifandi Íslendingar og allar framtíðarkynslóðir fái áfram búið í friði og hagsæld í okkar frábæra samfélagi í frjálsu og fullvalda landi. Ég vil að hér þrífist áfram blómlegur efnahagur fyrir fjölskyldurnar og fyrir unga fólkið sem á að vilja koma sér fyrir hér á Íslandi, kaupa sér húsnæði hér á Íslandi og stofna fjölskyldu hér á Íslandi. Ríkisstjórn Íslands hefur á vissan hátt brugðist þessum hópum en það bætum við ekki með því að framselja hluta valds frá Alþingi Íslendinga til Evrópusambandsins. Evrópusambandið mun að sjálfsögðu aldrei taka meira tillit til séraðstæðna og sérhagsmuna okkar Íslendinga en við getum gert sjálf ef við ákveðum að taka verkefnið alvarlega.
Ef við værum í ESB væru fyrirsjáanlegar hagsveiflur framtíðarinnar mun líklegri til að bitna sérstaklega á ungu fólki á Íslandi í formi aukins atvinnuleysis sem er mikil plága sem við þurfum ekki að gera okkur far um að festa í sessi hér á Íslandi þótt hún sé landlæg í Evrópusambandinu. Þar bitnar hún vel að merkja mjög illa á hagsmunum fólks á húsnæðismarkaði og ekki myndu þeir heldur batna hér á Íslandi með því að Ísland missti enn frekari stjórn á innflytjendastefnu sinni en nú þegar er orðið. Tilraunir fólks til að láta eins og efnahagslegir hagsmunir þessa hóps séu bara afgreiddir með því að bera saman vexti í tveimur löndum á ákveðnum tíma í stað heildarmyndar efnahagsmála eru í besta falli villandi.
Framtíðarkynslóðum okkar Íslendinga er einnig best borgið með áframhaldandi sjálfstæðri utanríkisstefnu okkar Íslendinga um samskipti við umheiminn, nágranna og vinaþjóðir okkar um allan hnöttinn. Við erum vinir annarra þjóða en ekki þegnar neins, hvorki Bandaríkjanna né Evrópusambandsins. Við eigum nú þegar náið og djúpt samstarf við Evrópusambandið í gegnum EES-samninginn. Við höfum markaðsaðgang, viðskiptafrelsi og ákveðinn sveigjanleika, en þurfum ekki að fórna yfirráðum yfir fiskveiðiauðlindinni, landbúnaði, tollastefnu, orkumálum og svo sjálfstæðri peningastefnu. Þessum grundvallarþáttum eigum við ekki að fórna núna fyrir mjög óljósan efnahagslegan ávinning eins og margir hvetja til. Enn síður núna þegar Evrópusambandið er í efnahagslegum þrengingum á flestum sviðum og engan veginn útséð um að ástandið batni þar í bráð.
Virðulegur forseti. Í mörgum stórum málum treystir hæstv. ríkisstjórn hvorki íslensku þjóðinni né virðir hún þjóðarviljann en þegar kemur að því að koma Íslandi inn í Evrópusambandið þá skyndilega ber ríkisstjórnin sér á brjóst og treystir þjóðinni svona líka afskaplega vel. En af hverju í þessu máli? Það er sorgleg skýring á því. Það er vegna þess að öðruvísi eru Evrópusambandssinnar innan ríkisstjórnar ráðþrota. Þeir hafa ekki einu sinni næstum því meiri hluta fyrir aðild að Evrópusambandinu hér á Alþingi eins og þeir ættu auðvitað að hafa fyrir svona mál og þetta er því eina leið þeirra. Með þessu máli er klofin ríkisstjórn að flytja sinn eigin ágreining yfir á þjóðina, ágreining sem hún getur ekki leyst innan eigin raða án þess að liðast í sundur. Ef niðurstaða í þjóðaratkvæðagreiðslu verður já verður þessari sömu klofnu ríkisstjórn, sem er ekki sameinuð um það hvort eða á hvaða forsendum á að ganga í Evrópusambandið, falið að sækja um aðild að sambandinu fyrir hönd okkar Íslendinga. Og þessari klofnu ríkisstjórn, sem sagt hæstv. utanríkisráðherra Viðreisnar, er þar að auki treyst til að sinna þessu ferli fyrir okkur Íslendinga án þess að við fáum að vita fyrir fram hver skilyrðin verða.
Flokkur fólksins er á móti aðild. Samfylkingarmenn gefa það út að jafnvel þótt við náum samningum við Evrópusambandið eigi þeir enn eftir að ákveða sig hvort sá samningur verði lagður fyrir þjóðina. Þeir ætla að sjá til hvort hann sé nógu góður og svo mögulega hætta þeir við að treysta þjóðinni.
Virðulegur forseti. Margar þjóðir hafa vafalaust ástæðu til að taka þátt í Evrópusambandinu, ég ætla ekki að efast um það. En í okkar tilfelli er ljóst frá upphafi að við myndum greiða meira inn en við tækjum út, a.m.k. 30 milljarða kr. á ári sem við munum greiða nettó inn í sambandið án þess, enn og aftur, að skýrt sé að við hefðum nokkurn ávinning af því yfirleitt. Við Íslendingar erum ólíkt fjölda Evrópusambandsþjóða í öfundsverðri stöðu á flesta lund. Við erum fámenn og samheldin eyþjóð með einstakt og traust auðlindadrifið nútímahagkerfi með fullan aðgang að okkar eigin hreinu orku, getu til að semja sjálfstætt við umheiminn og stjórntæki til að bregðast hratt við hvers konar áföllum út frá okkar eigin hagsmunum. Framtíð okkar er björt og tækifæri okkar eru stórkostleg en þeim fjölgar ekki með aðild að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Þetta er staða Íslands í augnablikinu. (Forseti hringir.) Það er rétt að það er stundum krefjandi að ráða sér sjálfur en það er betra.